Kvikusöfnun sársaukans Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir skrifar 2. mars 2024 10:00 Í dag sá ég að kollegi minn á Instagram, skáldið og bókavörðurinn Mosab Abu-Toha, var að segja frá því að 150 manns sem hefðu verið að bíða komu nauðsynja; hveitis, vatns, lyfja o.s.frv. hefðu verið skotnir af Ísraelsher. Myrtir. Af fréttavef RÚV: “Ísraelskir hermenn skutu í morgun fólk sem þusti að vöruflutningabílum sem fluttu matvæli og aðrar nauðsynjar til fólks á Gaza.” Þungvopnaðir hermenn á skriðdrekum skaut á mannþröng af sveltandi fólki, fólki sem er að reyna að næla sér í hveitipoka og nauðsynjar fyrir börnin sín. Þeir skutu á fólkið og myrtu rúmlega hundrað manns með köldu blóði, slösuðu og særðu enn fleiri sem eiga í erfiðleikum með að láta gera að sárum sínum því Ísraelsmenn hafa sprengt upp flesta ef ekki alla spítala á Gaza. Það hefur lengi verið ljóst að markmið Ísraelsstjórnar er að eyða Palestínu. Þeir hafa í skjóli Bandaríkjanna, Bretlands og fleiri vestrænna þjóða tekið land þeirra, skorið nauðþurftir við nögl og lokað þá af með múr. Palestínufólkið er fangar, það getur ekki um frjálst höfuð strokið. Frá því í október hefur Ísrael notað þá fjarvistarsönnun að landið sé í sjálfsvörn. Ísraelsmenn segjast vera í sjálfsvörn gegn hernumdri þjóð. Það er eitthvað mjög bogið við þessi rök sem fjölmiðlar og stjórnmálamenn tönglast á. Hvernig getur vopnuðum hermönnum staðið ógn af sveltandi saklausum borgurum? Hvernig er hægt að stráfella börn, konur og menn af dæmalausri heiftúð og kalla það sjálfsvörn? Þetta er óskiljanlegt. Stjórnmálafólk þessa lands og vestrænna ríkja á erfitt með að koma orðum að máttleysi sínu. Þetta er svo flókið segja þau og senda svo máttlausar yfirlýsingar um að þau krefjist vopnahlés vegna þessara stríðandi fylkinga. En þetta er ekki stríð! Það eru Ísraelsmenn fá milljarða frá Biden forseta til þess að halda úti einum best búna her heims. Það eru Ísraelsmenn sem hindra bílalestir með hjálpargögn í því að komast inn á Gaza og svo skjóta þeir á fólkið þegar það er að sækja sér neyðaraðstoð. Síðast þegar bárust hjálpargögn til norður Gaza var 23. janúar síðastliðinn. Börn á Gaza eru nú að deyja úr hungri, vökvaskorti og veikindum. Það er hungursneyð á Gaza af mannavöldum, af völdum Ísraelsmanna, Bandaríkjanna, Bretlands, Evrópusambandsins og okkar Íslendinga. Utanríkisráðherra ætlar svo að bíta höfuðið af skömminni með því að skera á líflínu Palestínubúa, Palestínu flóttamannahjálparinnar, UNWRA, stofnuð 1949 af Sameinuðu Þjóðunum, sem neyðarhjálp vegna Nakba þegar Ísraelsríki var stofnað í Palestínu. Vegna þess að átökin hófust ekki 7. október 2023. Þau hófust þegar jarðir, lönd, eignir, hús, götur, ólívutré og jarðaberjaakrar voru tekin af Palestínubúum. Þeir voru hraktir burt, drepnir og lokaðir inni í flóttamannabúðum. Palestínska þjóðin var gerð að flóttamönnum og föngum í eigin landi og það í nafni og krafti nýlenduveldanna, okkar vesturlandabúa. Bráðabirgðarniðurstaða æðsta dómstóls á heimsvísu, Alþjóðadómstólsins í Haag, er að Ísraelsmenn séu að fremja þjóðarmorð. Þetta er kerfisbundið, útreiknað þjóðarmorð. Það á eyða menningu Palestínumanna og öllum ummerkjum um sögu þeirra í Palestínu. Það er verið að stunda ofsóknir á konum og börnum. Konur eru niðurlægðar og beittar kynferðislegu ofbeldi af ísraelskum hermönnum, blaðamenn hafa verið stráfelldir og alþjóðlegum fjölmiðlum og hjálparstofnunum er meinaður aðgangur að Gaza. Hvers vegna? Svo að við getum ekki borið vitni? Svo að við getum ekki séð? Svo að við getum ekki komið þeim til hjálpar? Tala myrtra, saklausra Palestínumanna er komin yfir 30.000 síðastliðna fimm mánuði þar af yfir 13.000 börn. Þrettán þúsund börn. Ísraelsmenn eru þegar búnir að teikna og skipuleggja byggingar sem þeir ætla byggja á fjöldagröfum Palestínumanna á Gaza. Á Vesturbakkanum halda Ísraelsmenn uppteknum hætti hrekja fólk úr húsum sínum og eigna sér lönd þeirra. Við horfum upp á þennan sársauka, dag eftir dag og eymdin bókstaflega smýgur inn í merg og bein. Helförin síðari. Sagan sem enginn vildi sjá endurtaka sig er að endurtaka sig og nú eru fórnarlömb þeirrar fyrri orðnir að slátrurum þeirra síðari. Ég leyfi mér að birta með þessu máttlausa harmakveini mínu tvö ljóð, eitt þýtt ljóð eftir Mosab Abu-Toha og annað eftir mig sjálfa. Eina stormasama nótt til Mosab Abu-Toha Ég hlusta á harmakvein kattarlúgunnar vindurinn andar inn í húsið ískrið skerandi barnsgrátur á Gaza undir hlýrri sæng fyrir utan beljar stormurinn eins og húsið sé að hrynja horfi inn í myrkrið kattarlúgan kveinar eina stjörnulausa nótt í aðdraganda jólanna MHG Eina stjörnulausa nótt Á Stjörnulausri nótt, Ég ligg og bylti mér. Jörðin hristist, og Ég dett úr rúminu. Húsið við hliðina stendur ekki lengur. Það liggur eins og gamalt teppi Á jörðinni. Niðurtraðkað af sprengjum, stórir inniskór fljúga af lappalausum fótum. Ég vissi ekki að nágrannarnir ættu enn þetta litla sjónvarp, að þetta gamla málverk héngi enn á veggnum þeirra, að kötturinn þeirra hefði eignast kettlinga. Mosab Abu-Toha Þýðing úr Things you may find hidden in my ear: poems for Gaza. City Lights Books, San Francisco, 2022. Höfundur er skáld og bókavörður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Átök í Ísrael og Palestínu Ísrael Palestína Ljóðlist Mest lesið Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo Skoðun Skoðun Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar