Tíska og hönnun

Er skipulagsfrík og tekur reglu­lega til í töskunni

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Guðmundur Birgir Pálmason, Gummi Kíró, er viðmælandi í fasta liðnum Hvað er í töskunni?
Guðmundur Birgir Pálmason, Gummi Kíró, er viðmælandi í fasta liðnum Hvað er í töskunni? Vísir/Grafík

Kírópraktorinn og smekkmaðurinn Guðmundur Birgir Pálmason, jafnan þekktur sem Gummi Kíró, leggur mikið upp úr því að halda góðu skipulagi á töskunum sínum. Hann er viðmælandi í liðnum Hvað er í töskunni þinni? 

Gummi býr yfir veglegu töskusafni og er duglegur að breyta til en hann opnar hér töskuna sína fyrir lesendum Vísis.

Það leynist ýmislegt í töskunni hjá Gumma Kíró.Vísir/Grafík

Hvað er í töskunni þinni?

Ég er alltaf með lykla, síma, veski, dagkrem, varasalva, sólgleraugu, tyggjó og passann minn.

Gummi er mikill töskumaður. Hér er hann með Balenciaga Neo Classic medium töskuna sína sem er hans uppáhalds taska. Aðsend

Hefur einhver hlutur í töskunni tilfinningalegt gildi?

Ég er með dagbók sem mér þykir afar vænt um.

Gumma þykir vænt um dagbækur sínar.Vísir/Grafík

Er eitthvað sem er alltaf í töskunni þinni?

Það sem er talið upp að ofan. Þetta eru hlutir sem ég nota á hverjum degi og verð að hafa með mér alla daga. Stundum er ég svo með eitthvað nesti eða random hluti og þarf þess vegna að hafa stóra tösku.

Gumma finnst almennt betra að vera með stóra tösku. Aðsend

Hver er þín uppáhalds taska og af hverju?

Uppáhalds taskan mín er Balenciaga Neo classic medium sem ég keypti mér um daginn.

Þetta er í fyrsta skipti sem ég nota baguette bag, eða tösku með handfangi, sem karlmenn eru farnir að nota í meiri mæli erlendis, eins og klassísku Fendi baguette.

Ég nota einnig mikið Bottega Veneta pouch, Louis Vuitton og Dior.

Bottega Veneta pouch er í miklu uppáhaldi hjá Gumma. Aðsend

Ertu duglegur að taka til í töskunni þinni og halda röð og reglu?

Ég er skipulagsfrík og tek reglulega til í töskunni. 

Hendi gömlum miðum og tómum tyggjópökkum ásamt því að þrífa töskurnar að innan.

Ertu gjarnan með margar töskur á þér eða margar til skiptanna?

Ég á það til að skipta reglulega um töskur og fer það mikið eftir því í hvaða outfitti ég er og í hvernig stuði, en einnig fæ ég oft leið á sumum töskum og skipti þess vegna.

Ég rótera líka íþróttatöskum sem kallast weekend bag og þar er að finna merki eins og Louis Vuitton, Balmain, Plein og Tom Ford.

Gummi velur töskurnar gjarnan út frá klæðaburði. Aðsend

Stór eða lítil taska og af hverju?

Ég vil oftast hafa töskurnar mínar stórar þar sem ég er oft með mikið af fötum til skiptanna í íþróttatöskunni minni plús tvær snyrtitöskur og er sömuleiðis oft með smáhluti í day to day töskunni.


Tengdar fréttir

Alltaf með nasl í töskunni og þjáist af matarást á háu stigi

Markaðsstjórinn og ofurskvísan Pattra Sriyanonge lifir viðburðaríku lífi og er því mikilvægt fyrir hana að vera alltaf með réttu hlutina í töskunni. Lífið á Vísi tók púlsinn á henni í nýjum föstum lið sem heitir Hvað er í töskunni þinni?






Fleiri fréttir

Sjá meira


×