Viðskipti innlent

Engar torfur fundist enn í loðnuleitinni

Kristján Már Unnarsson skrifar
Guðmundur J. Óskarsson er sviðsstjóri uppsjávarsviðs hjá Hafrannsóknastofnun.
Guðmundur J. Óskarsson er sviðsstjóri uppsjávarsviðs hjá Hafrannsóknastofnun. Steingrímur Dúi Másson

Þriðja loðnuleitin frá áramótum, sem núna stendur yfir, hefur enn sem komið er ekki skilað neinni viðbót sem gefur tilefni til að ætla að grænt ljós verði gefið á loðnuveiðar þennan veturinn. Tvö leitarskip af þremur hafa lokið sinni yfirferð en það þriðja heldur áfram að leita næstu tvo til þrjá daga.

Fiskiskipin Ásgrímur Halldórsson SF og Polar Ammassak GR lögðu úr höfn síðastliðinn fimmtudag og leituðu undan Suðausturlandi.

„Skipin tvö fyrir austan komu til hafnar í gær og fyrradag og það var ekkert markvert að finna hjá þeim. Þessi litla loðnuganga á þeim slóðum var farin að sjást á Papagrunni og Lónsdýpi og því komin upp á grunnin allavega að einhverju leyti. Það varð ekkert vart við aðra göngu eins og vonast var eftir,“ segir Guðmundur J. Óskarsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs Hafrannsóknastofnunar.

Þriðja fiskiskipið, Heimaey VE, sigldi á föstudag til leitar undan Vestfjörðum og vestanverðu Norðurlandi. Þar voru vonir bundnar við að torfur gætu fundist norður af Húnaflóa, eins og gerðist í fyrra.

Siglingarferlar skipanna þriggja í loðnuleitinni. Heimaey VE er núna undan Vestfjörðum, Ásgrímur Halldórsson er kominn til Hafnar í Hornafirði og Polar Ammassak er kominn inn til Norðfjarðar.Hafrannsóknastofnun

„Það hefur ekki orðið vart við neina loðnugöngu enn fyrir norðvestan land hjá Heimaey. Veðrið hefur verið að stríða þeim en engu að síður hafa þeir náð að vera við leit. Þeirra yfirferð mun halda áfram suður eftir næstu 2-3 daga sýnist okkur,“ segir Guðmundur.

En hvað um framhaldið? Verður reynt meira þennan veturinn?

„Við höfum ekki tekið ákvarðanir um framhaldið. Rannsóknaskip okkar eru að fara í togararallið á næstunni kringum landið, Árni á miðvikudaginn og verður vestan til og Bjarni á mánudaginn og verður norðan lands, og verða því að vakta miðin að einhverju leyti með bergmálsmælana á upptöku. Togararnir Gullver og Breki taka einnig þátt og verða fyrir austan og sunnan,“ svarar sviðsstjóri Hafrannsóknastofnunar.

Hér má sjá siglingarferla skipanna.


Tengdar fréttir

Síðasta vonin gæti verið Húnaflóatorfa

Eftir árangurslausar tilraunir til að finna loðnuna hefur verið ákveðið að efna til nýs leitarleiðangurs í von um að afstýra loðnubresti. Skammur tími er til stefnu áður en loðnan drepst og verður lagt í hann strax á morgun.

Byggðirnar bíða spenntar fregna um hvort loðnuganga sé fundin

Vonir um loðnuvertíð þennan veturinn hafa glæðst eftir að fiskiskip urðu vör við flekki djúpt út af Suðausturlandi í gær, sem líklegt þykir að séu stórar loðnutorfur. Í loðnubyggðum landsins bíða menn spenntir fregna um hvort loðna sé fundin í nægilegu magni til að leyfa veiðar.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×