Innherji

Stór banka­fjár­festir segir ó­hóf­legar eigin­fjár­kröfur kosta sam­fé­lagið tugi milljarða

Hörður Ægisson skrifar
Jón Sigurðsson, forstjóri Stoða sem er stór bankafjárfestir, fullyrðir að ef íslensku bankarnir væru skattlagðir eins og önnur fyrirtæki í landinu – í dag leggjast á þá þrír ólíkir sértækir skattar – þá gæti vaxtamunur þeirra verið hátt í tuttugu prósentum minni án þess að arðsemi á eigið fé þeirra minnkaði.
Jón Sigurðsson, forstjóri Stoða sem er stór bankafjárfestir, fullyrðir að ef íslensku bankarnir væru skattlagðir eins og önnur fyrirtæki í landinu – í dag leggjast á þá þrír ólíkir sértækir skattar – þá gæti vaxtamunur þeirra verið hátt í tuttugu prósentum minni án þess að arðsemi á eigið fé þeirra minnkaði.

Langsamlega stærsti einkafjárfestirinn í Kviku og Arion gagnrýnir stjórnvöld fyrir að vilja ekki „taka á rót vandans“ í íslensku bankakerfi sem hann segir vera „óhóflegar“ eiginfjárkröfur og kosti heimili og atvinnulífið árlega tugi milljarða vegna meiri vaxtamunar en ella. Forstjóri Stoða hefði viljað sjá vaxtalækkunarferlið hefjast strax á síðasta fundi og brýnir Seðlabankann sem hann telur að sé „oft sinn versti óvinur“ í að ná niður verðbólguvæntingum með svartsýnum spám sínum um verðbólguhorfur.


Tengdar fréttir

Stoðir kaupa ráðandi hlut í Arctic Adventures

Stoðir leiða hóp innlendra fjárfesta sem hafa gengið frá kaupum á samtals nærri helmingshlut í Arctic Adventures. Viðskiptin voru gerð eftir að fyrrverandi forstjóri félagsins nýtti sér forkaupsrétt og seldi áfram hlutina í Arctic Adventures til fjárfestingafélagsins sem er nú orðið stór eigandi í þremur ferðaþjónustufyrirtækjum. 

Stoðir bæta við sig í Bláa lóninu fyrir nærri 700 milljónir

Fjárfestingafélagið Stoðir, sem kom fyrst inn í hluthafahóp Bláa lónsins í lok ágústmánaðar í fyrra með kaupum á 6,2 prósenta hlut Helga Magnússonar, þáverandi stjórnarformanni félagsins, bætti nokkuð við eignarhlut sinn í ferðaþjónustufyrirtækinu síðar á árinu og fer núna með samtals 7,3 prósenta eignarhlut. Nokkrir minni hluthafar í Bláa lóninu seldu bréf sín í félaginu á síðustu mánuðum ársins 2021.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×