Viðskipti innlent

Bjóða Grind­víkingum að færa fasta vexti

Árni Sæberg skrifar
Landsbankinn leyfir Grindvíkingum að halda föstum vöxtum í nýju húsi.
Landsbankinn leyfir Grindvíkingum að halda föstum vöxtum í nýju húsi. VÍSIR/VILHELM

Landsbankinn býður Grindvíkingum sem eru með íbúðalán á föstum vöxtum hjá bankanum og ákveða að selja ríkinu íbúðarhúsnæði sitt að halda þeim kjörum sem eru á láninu við kaup á nýrri fasteign.

Frumvarp liggur nú fyrir Alþingi um kaup ríkisins á íbúðarhúsnæði Grindvíkinga. Markmið lagasetningarinnar er að verja fjárhag og velferð íbúa í Grindavíkurbæ í ljósi óvissuástands vegna jarðhræringa með því að gefa einstaklingum í bæjarfélaginu kost á að losna undan þeirri áhættu sem fylgi eignarhaldi íbúðarhúsnæðis í bænum.

Í frumvarpinu er ekki gert ráð fyrir að hægt sé að flytja lán sem hvíla á heimilum í Grindavík yfir á nýja fasteign, það er að segja, veðflutningar eru ekki heimilaðir.

Geta haldið föstu vöxtunum

Í tilkynningu á vef Landsbankans segir að sé viðskiptavinur með íbúðalán hjá Landsbankanum vegna heimilis í Grindavík og hafi fest vextina á láninu til þriggja eða fimm ára, þá fái hann sömu vaxtakjör á jafnháu nýju íbúðaláni til kaupa á nýrri fasteign sé lánshlutfall (veðhlutfall) sambærilegt og á fyrri fasteign. 

Vaxtakjörin haldist óbreytt þann tíma sem eftir er af fastvaxtatímabilinu en síðan losni vextirnir, í samræmi við upphaflega lánaskilmála. Í samtali við Vísi segir Rúnar Pálmason, upplýsingafulltrú Landsbankans, að um þriðjungur grindvískra lántaka hjá bankanum sé með fasta vexti á húsnæðislánum.

Koma til móts við næstum því fyrstu kaupendur

Í tilkynningunni segir jafnframt að Landsbankinn hafi ákveðið að Grindvíkingar, sem höfðu keypt sér sína fyrstu íbúð í bænum á tveggja ára tímabilinu áður en Grindavík var rýmd 10. nóvember 2023, fái felld niður lántökugjöld vegna nýrra íbúðalána líkt og um fyrstu kaup væri að ræða.

Ungur fasteignareigandi í Grindavík sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær að Grindvíkingar í hans stöðu töpuðu margir hverjir öllu sínu eigin fé og kæmu út í milljóna tapi við uppkaup ríkisins.

Þá vekur bankinn athygli á því að allir sem eiga íbúðarhúsnæði í Grindavík geti fengið íbúðalán fyrir allt að 85 prósent af kaupverði íbúðar, líkt og gildir um fyrstu kaupendur. Hámark greiðslubyrðar megi vera allt að 40 prósent af ráðstöfunartekjum, í samræmi við yfirlýsingu fjármálastöðuleikanefndar Seðlabanka Íslands.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×