Bíður eftir símtalinu frá IKEA Valur Páll Eiríksson skrifar 21. febrúar 2024 08:01 Martin getur spilað sinn fyrsta landsleik í rúm tvö ár þegar Ísland mætir Ungverjalandi á fimmtudagskvöld. Vísir/Vilhelm Martin Hermannsson sér fram á að spila sinn fyrsta landsleik í tvö ár á fimmtudagskvöldið. Martin hefur átt í nógu að snúast innan sem utan vallar og er kominn með nóg af IKEA-ferðum í bili.
Martin sleit krossband í leik með Valencia á Spáni fyrir tveimur árum síðan. Það hefur gengið hægt hjá honum að finna sitt fyrra form og mikil samkeppni var í hans stöðu hjá félaginu. Hann ákvað að stökkva á tækifærið að færa sig yfir til Berlínar og semja við Alba Berlín í byrjun þessa árs. Hann segir líkamann allan vera að koma til en hefur haft nóg að gera utan vallarins. „Ég er þokkalegur. Auðvitað er búið að vera mikið álag síðustu vikur. Skipti frá Valencia til Berlínar svo það hefur verið mikið að gera í persónulega lífinu. Að skipta um íbúð, koma stráknum fyrir á nýjum leikskóla, svo er konan ólétt svo við erum að finna spítala og allt þetta,“ Martin sleit krossband fyrir um tveimur árum síðan, meiðsli sem hann er enn að jafna sig að fullu af.Stöð 2 Sport „Þetta er búin að vera algjör geðveiki en ég er ánægður. Ég er byrjaður að spila mikið aftur og að reyna að finna taktinn hægt og rólega. Þetta er allt á leiðinni í rétta átt.“ Búinn með síðustu IKEA ferðina í bili Eins og Martin minnist á er Anna María Bjarnadóttir, unnusta hans, ólétt af þeirra öðru barni. Meðgangan hefur gengið vel og stutt eftir. Martin vonast til að hún haldi í sér svo hann geti spilað fyrsta landsleikinn í rúm tvö ár. „Það hefur allt gengið vel og bara mánuður eftir. Svo er líka það, ef hún hringir og fer af stað í nótt þá þarf ég að bruna af stað. En það gengur allt mjög vel og við erum mjög ánægð að vera komin aftur til Berlínar. Ég hlakka til að komast í rútínu og líða eins og ég sjálfur aftur,“ segir Martin sem er kominn með nóg af ferðum í IKEA eftir flutninga síðustu vikna. Gengið hefur á miklu hjá Martin og Önnu Maríu síðustu vikur.Instagram/@annamariabj „IKEA maður,“ segir Martin og dæsir. „Ef þeir eru að horfa mega þeir fara að sponsa mig. Ég er búinn að eyða allt of miklum peningi þarna. En þetta er hluti af þessu. Fjölskyldunni og konunni þarf að líða vel þannig að maður hlustar á hana.“ Kampavínið bíður í kælinum Auk Ungverjalands eru Tyrkland og Ítalía í sterkum riðli Íslands í undankeppni Evrópumótsins. Verkefnið er erfitt en Martin hefur trú á íslenska liðinu. „Þetta eru allt mjög erfiðir leikir. Hver einasti leikur er do or die. Við þurfum að byrja hérna heima á móti Ungverjalandi sem er það lið sem er kannski næst okkur í styrkleika af þessum þremur,“ segir Martin. „En við erum búnir að sýna það síðustu ár að við erum með hörkulið og getum unnið alla, sérstaklega hérna heima. Það verður full höll sem gefur okkur mjög mikið og við erum mjög spenntir að spila fyrir framan fólkið okkar,“ segir Martin sem fylgdist með þegar Ísland komst grátlega nærri HM-sæti í síðustu undankeppni. „Okkur langar á annað stórmót, við vorum grátlega nálægt því í fyrra. Ég horfði á leikinn heima, kampavínið er ennþá í kalt inni í ísskáp og vonandi næ ég að opna það eftir þennan glugga.“ Viðtalið við Martin má sjá í spilaranum að ofan.
Landslið karla í körfubolta Barnalán Tengdar fréttir Frúin hágrátandi fyrst en fagnar nú viðveru á heimilinu Lífið tók óvænta beygju hjá Martin Hermannssyni þegar hann sleit krossband í vor eftir að hafa farið nánast meiðslalaus í gegnum allan sinn feril. Meiðslin hafa gefið honum nýja sýn og veitt honum tækifæri til að njóta lífsins án erilsins og ferðalaganna sem fylgja lífi atvinnumanns í körfubolta. 12. desember 2022 09:00 „Ég var með einhverja Súperman-stæla“ Körfuboltamaðurinn Martin Hermannsson sleit krossband í hné í fyrra og hefur eytt síðasta árinu í endurhæfingu. Hann segir allt vera á réttri leið, hefur lagt blóð, svita, tár og eigin peninga í endurhæfinguna og vonast til að taka þátt í komandi landsliðsverkefni Íslands. 26. júlí 2023 08:00 Skalli Martins væri ekki löglegur í dag: „Þetta má víst ekki lengur“ Martin Hermannsson, landsliðsmaður í körfubolta, vakti í dag athygli á reglubreytingu sem hefur orðið í alþjóðlegum körfuboltareglum. Martin átti frægan skalla í landsleik Íslands og Portúgal í undankeppni EM fyrir tveimur árum en slíkur skalli telst ekki lengur leyfilegur. 20. september 2022 14:00 Mest lesið Flugóður forseti FIFA Fótbolti Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti Gráti nær þegar hann frétti að hann myndi dæma úrslitaleikinn Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti „Fjögur ár eru langur tími“ Fótbolti „Ég er fyrst og fremst vonsvikinn með sjálfan mig“ Fótbolti Var rifrildið við Bellingham það sem kveikti í Messi? Fótbolti Siggi Raggi græddi á lygilegri atburðarás Fótbolti Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Handbolti Fleiri fréttir Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils Sjá meira
Frúin hágrátandi fyrst en fagnar nú viðveru á heimilinu Lífið tók óvænta beygju hjá Martin Hermannssyni þegar hann sleit krossband í vor eftir að hafa farið nánast meiðslalaus í gegnum allan sinn feril. Meiðslin hafa gefið honum nýja sýn og veitt honum tækifæri til að njóta lífsins án erilsins og ferðalaganna sem fylgja lífi atvinnumanns í körfubolta. 12. desember 2022 09:00
„Ég var með einhverja Súperman-stæla“ Körfuboltamaðurinn Martin Hermannsson sleit krossband í hné í fyrra og hefur eytt síðasta árinu í endurhæfingu. Hann segir allt vera á réttri leið, hefur lagt blóð, svita, tár og eigin peninga í endurhæfinguna og vonast til að taka þátt í komandi landsliðsverkefni Íslands. 26. júlí 2023 08:00
Skalli Martins væri ekki löglegur í dag: „Þetta má víst ekki lengur“ Martin Hermannsson, landsliðsmaður í körfubolta, vakti í dag athygli á reglubreytingu sem hefur orðið í alþjóðlegum körfuboltareglum. Martin átti frægan skalla í landsleik Íslands og Portúgal í undankeppni EM fyrir tveimur árum en slíkur skalli telst ekki lengur leyfilegur. 20. september 2022 14:00