Landsréttur á því að Síminn hafi ekki brotið lög með sölu enska boltans Jón Þór Stefánsson skrifar 16. febrúar 2024 17:11 „Þar sem sektin hafði áður verið felld niður að fullu með dómi Héraðsdóms hefur niðurstaða Landsréttar ekki áhrif á reikninga félagsins,“ segir í tilkynningu á vef Símans. Vísir/Vilhelm Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um að Síminn hafi ekki brotið gegn ákvæðum sáttar við Samkeppniseftirlitið með því að tvinna saman fjarskiptaþjónustu og línulega sjónvarpsþjónustu, enska boltann á Símanum Sport.
Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um að Síminn hafi ekki brotið gegn ákvæðum sáttar við Samkeppniseftirlitið með því að tvinna saman fjarskiptaþjónustu og línulega sjónvarpsþjónustu, enska boltann á Símanum Sport. Þar með hefur Landsréttur fellt ákvörðun Samkeppniseftirlitsins úr gildi, sem hafði lagt 500 milljóna króna sekt á Símann. Í kjölfarið skaut Síminn því til áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem lækkaði sektina í 200 milljónir. „Þar sem sektin hafði áður verið felld niður að fullu með dómi Héraðsdóms hefur niðurstaða Landsréttar ekki áhrif á reikninga félagsins,“ segir í tilkynningu á vef Símans. Á vef Samkeppniseftirlitsins segir að stofnunin hafi nú til skoðunar hvort leitaði verði eftir leyfi Hæstaréttar til að áfrýja dóminum. Í sáttinni milli Símans og Samkeppniseftirlitsins, sem málið varðar, samþykkti Síminn að gera það ekki að skilyrði fyrir kaupum á fjarskiptaþjónustu að sjónvarpsþjónusta myndi fylgja með kaupunum. Þar að auki væri Símanum óheimilt að tvinna saman í sölu fjarskiptaþjónustu og sjónvarpsþjónustu. Með Heimilispakka Símans bauðst viðskiptavinum að kaupa fjarskiptaþjónustu ásamt sjónvarpsþjónustu, sem innihélt enska boltann. Samkeppniseftirlitið taldi að Síminn hefði brotið gegn sáttinni með tilboðinu. Héraðsdómur taldi óumdeilt að Síminn hefði ekki gert það að beinu skilyrði fyrir kaupum á fjarskiptaþjónustu að útsendingar frá enska boltanum myndu fylgja með. Jafnframt hefði ekki verið lagt algert bann við samtvinnun á fjarskiptaþjónustu og sjónvarpsþjónustu og að tilboð Símans hafi ekki talist óeðlilegt. Samkeppniseftirlitinu hafi ekki tekist að færa sönnur fyrir broti Símans, að mati Héraðsdóms sem Landsréttur raskaði ekki. Í dómi Landsréttar segir jafnframt að til að skera úr um hvort Síminn hafi brotið lög verði að leggja fyrir hvort Síminn hafi verið í markaðsráðandi stöðu, en að það sé óljóst.
Samkeppnismál Fjarskipti Enski boltinn Síminn Dómsmál Mest lesið Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Sjá meira