Fótbolti

Já­kvæð á­hrif Freys ber­sýni­leg: „Hef aldrei séð svona áður“

Trúin á krafta­verki eflist með hverjum leiknum hjá leik­mönnum og stuðnings­mönnum belgíska úr­vals­deildar­fé­lagsins KV Kortrijk eftir drauma­byrjun Freys Alexanders­sonar í starfi þjálfara liðsins.

Aron Guðmundsson skrifar
Íslenski fáninn og víkingahjálmarnir eru farnir að vera áberandi í stúkunni á heimavelli KV Kortrijk. Þá er Freyr í miklum metum hjá stuðningsmönnum félagsins líkt og sjá má á meðfylgjandi mynd. Mynd: KV Kortrijk

Trúin á krafta­verki eflist með hverjum leiknum hjá leik­mönnum og stuðnings­mönnum belgíska úr­vals­deildar­fé­lagsins KV Kortrijk eftir drauma­byrjun Freys Alexanders­sonar í starfi þjálfara liðsins.

Freyr var keyptur til fall­bar­áttu­liðs KV Kortijk í belgísku úr­vals­deildinni frá danska liðinu Lyng­by í upp­hafi árs. Þá hafði liðið ekki unnið leik í deildinni síðan 21.októ­ber á síðasta ári. Kortijk vann sinn fyrsta leik undir stjórn Freysa og síðan þá hefur liðið leikið þrjá leiki og ekki tapað neinum þeirra.

Belgíski blaða­maðurinn Imar Vand­ena­beele sem starfar hjá HLN, stærsta fjöl­miðli Belgíu, hefur fylgst náið með gangi mála hjá KV Kortrijk undan­farin þrjú ár og hann tekur eftir miklum breytingum hjá liðinu eftir komu Freys.

„Freyr hefur breytt miklu nú þegar fyrir KV Kortrijk. Liðið var að­eins með tíu stig eftir tuttugu leiki í deildinni þegar að hann tók. Nú eftir fjóra leiki undir stjórn Freys hefur liðið sótt í átta stig af tólf mögu­legum. Stærstu breytingarnar varða samt sem áður kannski ekki skipun leik­manna­hópsins eða leik­skipu­lagið sjálft. Heldur hugar­farið sem er ríkjandi innan liðsins. Þar hafa stóru breytingarnar átt sér stað.“

Krafta­verk í upp­siglingu?

Kortrijk vann í gær mikil­vægan 1-0 sigur á Charleroi í fyrra­dag og þrátt fyrir að vera enn á botni deildarinnar er út­litið orðið tölu­vert bjartara fyrir liðið nú þegar að sex um­ferðir eru eftir af hinni hefð­bundnu deildar­keppni og vonast stuðnings­menn fé­lagsins eftir því að á­líka krafta­verk sé í upp­siglingu og Freyr fram­kvæmdi hjá Lyng­by á sínum tíma, að bjarga liðinu frá falli.

Freyr gat leyft sér að fagna eftir sigurleik Kortrijk á laugardaginnMynd: KV Kortrijk

„Fyrir komu Freys leit þetta oft á tíðum þannig út að það virtist ekki skipta leik­menn máli að vinna leiki. Auð­vitað er skrýtið að segja það en þetta leit þannig út. Þetta voru mjög erfiðir tímar fyrir fé­lagið. Næstum allir leikir töpuðust og nær allir voru sann­færðir um að liðið yrði fall­byssu­fóður í belgísku úr­vals­deildinni.

En undan­farnar vikur hafa orðið til þess að sú orð­ræða er farin að breytast. Það er ein­hver orka í kringum fé­lagið og ég tel það alveg ger­legt að það bjargi sér frá falli. Ég var ekki á því máli fyrir nokkrum vikum. Ég taldi liðið ekki eiga mögu­leika á því að halda sæti sínu í deildinni. Núna sér maður bar­áttu hugar­far. Lið­sandinn er mikill og viljinn til þess að vinna leiki er til staðar.“

Freyr fékk á upp­hafs­dögunum í starfi tæki­færi til þess að breikka leik­manna­hóp Kortrijk í ný­af­stöðnum fé­lags­skipta­glugga í janúar og nefnir Imar þar helst komu japönsku varnar­mannanna Ryotaro Tsunoda og Haru­ya Fujii sem hafa komið af krafti inn í liðið.

Ís­lenska hugar­farið

Imar segir Frey ekki breytt of miklu hvað leik­skipu­lag Kortrijk varðar.

„Hann gerði nokkrar taktískar ­breytingar með 3-5-2-kerfinu og það gengur mjög vel upp. Þeir eru með fram­herja, Feli­pe A­venatti, sem var úti í kuldanum hjá fyrr­verandi stjóra Kortrijk. Fyrri þjálfari notaði hann ekki en Freyr notaði hann og sagði hann vera mikil­vægasta leik­manninn. Hann hefur staðið sig mjög vel í síðustu tveimur leikjum. Þetta er lík­lega stærsta breytingin en hann nýtur trausts leik­manna og hefur breytt flestu í tengslum við fé­lagið.

Ég tek til að mynda eftir því að hugar­far leik­manna hefur breyst til muna. Þetta er ís­lenska hugar­farið sem felst í vinnu­semi innan sem utan vallar. Breytingin á hugar­farinu skipti miklu máli. Kortrijk er nánast nýtt lið sökum hugar­fars­breytingar leik­manna. Ég hef aldrei séð svona áður.

Líta loks út eins og lið

Þá hafi Freyr smitað já­kvæðu and­rúms­lofti út frá sér um fé­lagið og yfir til stuðnings­manna.

„Maður sér meiri liðs­heild núna. Í upp­hafi tíma­bils gat maður séð að sumir leik­menn voru svo­lítið sjálf­hverfir en það er ekki að sjá núna. Kortrijk lítur út eins og al­vöru lið þar sem að leik­menn berjast fyrir hvorn annan.“

And­rúms­loftið í kringum fé­lagið er allt annað. Sam­band Freys við stuðnings­menn og fjöl­miðla hafi til að mynda farið mjög vel af stað. Það er eins og nýtt tíma­skeið sé hafið hjá Kortrijk. Helsta breytingin varði hugar­far leik­manna.

Átta stig af mögu­legum tólf í fyrstu fjórum leikjum Kortrijk undir stjórn Freys hefur eflt trúna hjá leik­manna­hópnum og stuðnings­mönnum en verk­efnið fram ­undan er ærið. Því þrátt fyrir gott gengi undan­farið er stað­reyndin þó sú að liðið er enn á botni belgísku úr­vals­deildarinnar. Trúin er þó til staðar.

„Í gær unnu þeir á heima­velli gegn Charleroi og leik­menn sögðust trúa hundrað prósent á krafta­verk. Menn efuðust dá­lítið fyrir leikinn en eftir leikinn gegn Charleroi sögðust sumir leik­menn trúa á krafta­verk með nýjum stjóra. Þeir höfðu meiri trú á þessu eftir Charleroi-leikinn og telja að þetta hafist. Þetta verður samt erfitt. En... ég trúi á þetta.“


Tengdar fréttir

„Síðustu vikur hafa verið mikil rússí­bana­reið“

Í Sport­pakkanum á Stöð 2 í kvöld verður rætt við Frey Alexanders­son, ný­ráðinn þjálfara belgíska úr­vals­deildar­fé­lagsins KV Kortrijk. Þar fer Freyr yfir rússí­bana­reið undan­farinna vikna, á­kvörðunin að halda til Kortrijk sem er í miklu basli heima fyrir þessa dagana og hefur upp­lifað mikinn ó­stöðug­leika undan­farin ár.

Til­finninga­þrunginn Freyr í fyrsta leik sínum í Belgíu

Freyr Alexandersson byrjaði þjálfunarferil sinn í Belgíu með látum þegar lið hans KV Kortrijk vann óvæntan 1-0 útisigur á Standard Liege. Nú hefur félag hans birt gríðarlega tilfinningaþrungið myndband frá sigrinum þar sem heyra má hvað Freyr sagði við mannskapinn fyrir leikinn.

Freyr og lærisveinar hans unnu

Freyr Alexandersson hélt áfram góðri byrjun sinni hjá belgíska liðinu Kortrijk með sigri í dag.






×