Handbolti

Segir að Bjarki hafi skipt sjálfum sér út af

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Bjarki Már Elísson á hliðarlínunni gegn Austurríki.
Bjarki Már Elísson á hliðarlínunni gegn Austurríki. vísir/vilhelm

Frammistaða Bjarka Más Elíssonar var til umræðu í Besta sætinu, hlaðvarpi íþróttadeildar Sýnar, og menn veltu fyrir sér hvort hann hefði skipt sjálfum sér út af í leiknum gegn Austurríki.

Bjarki klúðraði öllum fjórum skotunum sínum þegar Ísland vann Austurríki, 24-26, í lokaleik sínum á EM í gær. Sigurinn dugði Íslendingum ekki til að komast í forkeppni Ólympíuleikanna sem var útgefið markmið þeirra fyrir EM.

Einar Jónsson, þjálfari Fram, og Bjarni Fritzson, þjálfari ÍR, fóru yfir leikinn gegn Austurríki ásamt Stefáni Árna Pálssyni í Besta sætinu. Þar ræddu þeir meðal annars um frammistöðu Bjarka og veltu því upp hvort hornamaðurinn hefði hreinlega skipt sjálfum sér af velli um miðjan seinni hálfleik fyrir Stiven Tobar Valencia.

„Ég hef aldrei séð leikmann skipta sjálfum sér út af í landsleik,“ sagði Stefán Árni. Bjarni var ekki á sama máli.

„Við vitum það ekki alveg. Kannski var Snorri bara, ok, nú segjum við stopp, komdu vinur minn,“ sagði Bjarni.

„Hann leit ekkert á bekkinn. Hann hljóp beint út af. Mögulega hefur Snorri sagt: Ef þú klikkar á næsta færi kemurðu strax út af,“ sagði Stefán Árni en Bjarni tók þá aftur við boltanum.

„Ég þekki Bjarka ágætlega því þegar hann var að koma spilaði ég á móti honum í horninu. Hann tekur alltaf bara næsta færi. Honum er drullusama. Ég er pottþéttur á því að hann hljóp ekki út af. Það er mín skoðun en þetta leit þannig út.“

Einar var hins vegar á sama máli og Stefán Árni og taldi Bjarka hafa skipt sjálfum sér af velli.

„Hann skýtur á markið, lendir og straujar beint í átt að bekknum,“ sagði Einar en Bjarni gaf sig ekki.

„Hann er ekki þannig týpa að gefast upp. Stiven hefur bara verið kominn úr peysunni og Snorri verið með hann kláran.“

Þáttinn má heyra í spilaranum að ofan. Besta sætið er aðgengilegt á öllum helstu hlaðvarpsveitum, t.a.m. á Spotify hér. Hver einasti leikur Íslands á EM verður gerður upp af sérfræðingum í Besta sætinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×