Um­fjöllun: Austur­ríki - Ís­land 24-26 | Sigur en þurfum að treysta á önnur úr­slit

Andri Már Eggertsson skrifar
Menn voru svekktir eftir að hafa aðeins unnið með tveimur mörkum.
Menn voru svekktir eftir að hafa aðeins unnið með tveimur mörkum. Vísir/Vilhelm

Ísland vann tveggja marka sigur gegn Austurríki 24-26. Eftir frábæran fyrri hálfleik byrjaði Ísland síðari hálfleik skelfilega. Lokamínúturnar voru æsispennandi en Ísland vann að lokum með tveimur mörkum. 

Aron Pálmarsson hefur verið að spila frábærlega á mótinu og átt sitt besta stórmót í langan tíma. Aron byrjaði vel og var allt í öllu í leik liðsins. Aron skoraði þrjú af fyrstu fjórum mörkum Íslands og fiskaði einnig víti.

Eftir kraftmikla byrjun Íslands datt markmaður andstæðingsins í gang eins og svo oft áður. Constantin Möstl varði þó nokkur dauðafæri og dró tennurnar úr íslenska liðinu. Eftir að Ísland komst tveimur mörkum yfir 2-4 tókst liðinu ekki að skora í tæplega átta mínútur.

Eftir því sem leið á fyrri hálfleik fór að ganga betur og betur. Vörnin var afar þétt og Viktor Gísli Hallgrímsson varði eins og berserkur. Viktor Gísli varði 17 skot í fyrri hálfleik og var með 68 prósent markvörslu í hálfleik.

Viktor Gísli Hallgrímsson varði afar vel í fyrri hálfleikVísir/Vilhelm

Austurríki fór að spila með aukamann í sókn og þá fór allt að ganga upp hjá Íslandi sem refsaði trekk í trekk með auðveldum mörkum. Sigvaldi Björn Guðjónsson nýtti hraðaupphlaupin vel og átti frábær tilþrif þegar hann fíflaði Möstl sem renndi sér á rassinn þegar að Sigvaldi hótaði skoti og skoraði síðan í autt markið.

Ísland skoraði síðustu sex mörk fyrri hálfleiks og staðan fór úr 8-8 í 8-14.

 

Mótspyrnan var töluvert meiri í upphafi síðari hálfleiks heldur en síðustu mínúturnar í fyrri hálfleik. Leikmenn Austuríks rifu sig í gang og gerðu fimm mörk í röð. Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari íslenska landsliðsins, tók leikhlé í stöðunni 14-15.

Þrátt fyrir leikhlé Snorra héldu vandræði liðsins áfram. Eftir sjö mörk í röð frá Austurríki þá skoraði Janus Daði Smárason en liðið hafði ekki skorað í 13 mínútur. Janus jafnaði leikinn í 16-16.

Aron Pálmarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins, var ekki búinn að syngja sitt síðasta en hann fór fyrir liðinu þegar allt var í járnum undir lok leiks. Lokamínúturnar voru æsispennandi og Ísland vann að lokum tveggja marka sigur 24-26.

Úrslitin þýða að ef Ungverjaland tapar ekki gegn Frakklandi verður Ísland fyrir ofan Austurríki og Ísland kæmist þá í undankeppni Ólympíuleikanna ef Egyptar verða Afríkumeistarar.  

Menn voru svekktir eftir aðeins tveggja marka sigurVísir/Vilhelm

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira