Innherji

Fé­lag Róberts seldi breytan­leg bréf á Al­vot­ech fyrir um milljarð

Hörður Ægisson skrifar
Markaðsvirði Alvotech rauk upp um nærri 90 milljarða í byrjun vikunnar eftir að ljóst varð að samþykki frá FDA væri nánast í höfn og nemur núna um 580 milljörðum.
Markaðsvirði Alvotech rauk upp um nærri 90 milljarða í byrjun vikunnar eftir að ljóst varð að samþykki frá FDA væri nánast í höfn og nemur núna um 580 milljörðum. Vísir/Vilhelm

Fjárfestingafélag í aðaleigu Róbers Wessman, stofnanda og forstjóra Alvotech, seldi í síðustu viku, daginn áður en Lyfjaeftirlit Bandaríkjanna lauk úttekt sinni á framleiðsluaðstöðu fyrirtækisins, breytanleg skuldabréf á líftæknilyfjafélagið fyrir tæplega einn milljarð króna. Bréfin voru seld með tugprósenta hagnaði frá því að þau voru keypt í lok júlí í fyrra.


Tengdar fréttir

Hluta­bréfa­sjóðir með mikið undir í Al­vot­ech í að­draganda á­kvörðunar FDA

Mikill meirihluti hlutabréfasjóða landsins, sem eru að stórum hluta fjármagnaðir af almenningi, er með hlutabréfaeign í Alvotech sem annaðhvort sína stærstu eða næstu stærstu eign núna þegar örfáar vikur eru í að niðurstaða fæst um hvort félagið fái samþykkt markaðsleyfi fyrir sitt helsta lyf í Bandaríkjunum. Hlutabréfaverð líftæknilyfjafyrirtækisins hefur rokið upp á síðustu vikum, meðal annars byggt á væntingum um að Alvotech muni loksins fá grænt ljóst frá Lyfjaeftirliti Bandaríkjanna.

Búast við tals­verðum greiðslum á næstu vikum vegna nýrra sam­starf­samninga

Stjórnendur Alvotech, sem sá lausafé sitt minnka um meira en 110 milljónir dala á þriðja fjórðungi samhliða miklum fjárfestingum, segjast vera í viðræðum við lyfjafyrirtæki um samstarfssamning vegna líftæknilyfjahliðstæðna í þróun hjá félaginu sem geti skilað sér í talsverðum greiðslum undir lok árs. Dræmar sölutekjur ollu vonbrigðum en Alvotech fullyrðir að þær muni taka við sér á yfirstandandi ársfjórðungi þegar lyfin eru hlutfallslega seld meira á mörkuðum þar sem verðlagningin á þeim er hærri.

Líf­eyris­sjóðir keyptu breytan­leg bréf á Al­vot­ech fyrir um þrjá milljarða

Rúmlega fjörutíu fjárfestar, meðal annars að stórum hluta íslenskir lífeyrissjóðir, komu að kaupum á breytanlegum skuldabréfum útgefnum af Alvotech upp á samtals meira en níu milljarða króna í lokuðu útboði sem kláraðist um liðna helgi. Með þeirri fjármögnun, ásamt einnig fjárfestingu lyfjarisans Teva fyrir jafnvirði um fimm milljarða í skuldabréfum með breytirétti í hlutafé Alvotech, hefur íslenska líftæknilyfjafélagið tryggt rekstur og áframhaldandi fjárfestingar í þróun hliðstæðulyfja vel inn á næsta ár.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×