Handbolti

„Þá ættuð þið að heyra í okkur uppi á her­bergi“

Sindri Sverrisson skrifar
Aron Pálmarsson þakkar íslensku stuðningsmönnunum í München fyrir stuðninginn. Þeir gerðu sitt besta til að hvetja liðið til dáða.
Aron Pálmarsson þakkar íslensku stuðningsmönnunum í München fyrir stuðninginn. Þeir gerðu sitt besta til að hvetja liðið til dáða. VÍSIR/VILHELM

Aron Pálmarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í handbolta, lætur neikvæðni annarra í garð liðsins eftir tapið slæma gegn Ungverjalandi ekki á sig fá. Leikmenn séu sjálfir mun óvægnari í gagnrýni á eigin frammistöðu en blaðamenn.

Íslenska landsliðið býr sig nú undir afar erfiðan leik við Þjóðverja á þeirra heimavelli í Lanxess-höllinni í Köln í kvöld. Þangað kom íslenski hópurinn rétt fyrir kvöldmat í gær, eftir langa lestarferð frá München.

Strákarnir okkar hafa valdið mörgum vonbrigðum hingað til á EM og geta þakkað Svartfellingum fyrir að vera enn með á mótinu. Versta frammistaðan var í fyrrakvöld, gegn Ungverjum.

„Þetta var erfitt [í fyrrakvöld] auðvitað. Ég vaknaði pínu pirraður [í gærmorgun], en svo hefur þú ekkert tíma í að fara eitthvað dýpra í það. Þú gerir það bara eftir mót,“ sagði Aron á hóteli landsliðsins í gærkvöld.

Klippa: Aron lætur bölsýni annarra ekki trufla sig

„Við fórum yfir þetta [tapið gegn Ungverjum] á hótelinu sem lið, og svo aðeins hver í sínu horni, til að kafa og finna lausnir. En svo er enginn tími til að staldra við þetta. Þú mátt hvorki fara of hátt eftir sigurleiki, eða of langt niður þegar þú spilar illa. Núna er bara full einbeiting á Þjóðverja,“ sagði Aron sem hittir sinn gamla læriföður Alfreð Gíslason, þjálfara Þýskalands, í kvöld og reiknar með gríðarlegri stemningu í höllinni.

Aðspurður hvort Aron hafi orðið var við þá miklu svartsýni sem var á samfélagsmiðlum eftir síðasta leik, og hvort leikmenn nái að leiða hana hjá sér, svaraði fyrirliðinn margreyndi:

„Ég vona það. Ég er ekki mikið á þessu en auðvitað sér maður fréttir, eðlilega, og það er ekkert sem að kemur manni á óvart þar. Ef að þið haldið að þið blaðamenn séuð neikvæðir þá ættuð þið að heyra í okkur uppi á herbergi eftir svona leik. Þetta er ekki eitthvað sem ætti að slá okkur eitthvað út af laginu.“

Næsti leikur Íslands á EM er gegn Þýskalandi í kvöld klukkan 19:30 að íslenskum tíma. Öflugt teymi Vísis og Stöðvar 2 er í Þýskalandi og fjallar um mótið í máli og myndum.


Tengdar fréttir

Alfreð Gíslason ætlar að syngja báða þjóðsöngvana

Áhuginn á Alfreð Gíslasyni, landsliðsþjálfara Þýskalands, og þýska liðinu er magnaður. Það var heldur betur fjölmennt á fjölmiðlafundi hans í Lanxess-höllinni í gær. Það var her manna að elta kóng handboltans í landinu.

„Getur annað hvort lagst niður eða reynt að rísa upp“

Bjarki Már Elíasson, hornamaður íslenska karlalandsliðsins í handbolta, sagði liðið hafa svekkt sig mikið á tapinu gegn Ungverjum í gær. Hann kvaðst þó bjartsýnn fyrir leikinn á morgun og telur liðið geta stillt saman strengi sína. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×