Handbolti

„Þá verður þetta að­eins per­sónu­legra“

Sindri Sverrisson skrifar
Aron Pálmarsson með boltann í leiknum við Ungverja á HM fyrir ári síðan, sem Ísland tapaði með sárgrætilegum hætti.
Aron Pálmarsson með boltann í leiknum við Ungverja á HM fyrir ári síðan, sem Ísland tapaði með sárgrætilegum hætti. VÍSIR/VILHELM

Fyrirliðinn Aron Pálmarsson segir að leikur við Ungverjaland sé „aðeins persónulegri“ en aðrir leikir á EM í handbolta. Fram undan sé hörkuleikur í kvöld sem jafnframt sker úr um hvaða lið endar á toppi C-riðils og fer með fullt hús stiga í milliriðla.

„Þetta er bara úrslitaleikur. Við erum svo sem búnir að vera í úrslitamómentum allt mótið og það leggst vel í okkur að takast á við þá,“ sagði Elliði Snær Viðarsson en þeir Aron ræddu saman við Vísi fyrir æfingu landsliðsins í gær. Eftir sætan sigur á Svartfellingum á sunnudaginn var fókusinn kominn á Ungverja í gær:

„Við erum búnir að mæta þeim nokkuð oft undanfarin stórmót og því oftar sem maður mætir þeim, á svona stuttum tíma, þá verður þetta aðeins persónulegra. Maður þekkir einhverja þarna og yfirleitt eru þetta mjög góðir leikir. Við búumst við hörkuleik og mikilli spennu, og ég held líka að þetta verði mjög skemmtilegur leikur,“ sagði Aron.

Klippa: Aron og Elliði þekkja Ungverja mætavel

Ljóst er að ein helsta áskorun Íslendinga í kvöld felst í því að halda aftur af Bence Bánhidi, línumanninum tröllvaxna:

„Það verður alla vega ekkert létt. Ég held að við verðum bara að vera 3-4 á honum og vonast til að markverðirnir taki skotin frá hinum. Það verður verðugt verkefni og kemur bara í ljós [í dag] hvernig við dílum við það,“ sagði Elliði.

Það var lauflétt yfir mönnum í upphafi landsliðsæfingar í München í gær og hér knúsar Aron Pálmarsson hornamanninn Stiven Valencia innilega.VÍSIR/VILHELM

Loksins komið að leiknum sem skiptir öllu máli

Aron segir spilamennsku íslenska liðsins á réttri leið og vonast eftir frekari bætingum í dag:

„Við vorum betri á móti Svartfellingum en gegn Serbum. Náðum að laga hluti sóknarlega, sérstaklega, en klikkuðum þá á dauðafærum. Ég var mjög ánægður með hvernig við svöruðum fyrir okkur taktískt á móti Svartfellingum.

Við þurfum að gera aðeins betur varnarlega þegar líður á leikina. Í fyrri hálfleik, í báðum leikjum, höfum við verið geggjaðir í vörn. Mér finnst vera stígandi og ég trúi því að við munum bara bæta okkar leik þegar líður á,“ sagði Aron, staðráðinn í að láta leikinn í kvöld ekki verða þann síðasta á þessu móti, rétt eins og Elliði:

„Það er búið að vera markmið okkar allan tímann og það er loksins komið að leiknum sem skiptir öllu máli. Við verðum bara að vinna hann.“

Næsti leikur Íslands er gegn Ungverjalandi í kvöld klukkan 19:30 að íslenskum tíma. Öflugt teymi Vísis er á staðnum og fjallar ítarlega um mótið í máli og myndum.


Tengdar fréttir

Nú er nóg komið af ungversku svekkelsi

Íslenska karlalandsliðið í handbolta mætir Ungverjalandi í kvöld í lokaleik sínum í riðlakeppni Evrópumótsins í handbolta í Þýskalandi.

Þegar ég vinn í dag þá bætir það ekki upp fyrir það sem gerðist

Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari í handbolta, segir að glíman við Ungverjaland á EM í kvöld sé úrslitaleikur. Hann líti hins vegar ekki á hana sem einhvers konar persónulegt uppgjör, eftir sárar minningar frá fyrri viðureignum og þá sérstaklega einni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×