Handbolti

Þegar ég vinn í dag þá bætir það ekki upp fyrir það sem gerðist

Sindri Sverrisson skrifar
Snorri Steinn Guðjónsson nýtir stundum tímann í nokkur körfuboltaskot með handboltanum á meðan lærisveinar hans liðka sig til í upphafi æfingar.
Snorri Steinn Guðjónsson nýtir stundum tímann í nokkur körfuboltaskot með handboltanum á meðan lærisveinar hans liðka sig til í upphafi æfingar. VÍSIR/VILHELM

Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari í handbolta, segir að glíman við Ungverjaland á EM í kvöld sé úrslitaleikur. Hann líti hins vegar ekki á hana sem einhvers konar persónulegt uppgjör, eftir sárar minningar frá fyrri viðureignum og þá sérstaklega einni.

„Nei, alls ekki. Þetta er bara leikur sem ég vil vinna. Þegar ég vinn þennan leik þá bætir það ekkert upp fyrir það sem gerðist fyrir einhverjum árum síðan,“ sagði Snorri Steinn við Henry Birgi Gunnarsson á æfingu í München í gær.

Ísland tapaði gegn Ungverjum með sárum hætti á HM fyrir ári síðan en ætla má að Snorri vísi í enn sárara tap, í 8-liða úrslitum á Ólympíuleikunum í London 2012, þar sem Snorri tók örlagaríkt vítakast í lok leiks.

Ísland vann reyndar Ungverja á þeirra heimavelli á EM fyrir tveimur árum, en aðspurður hvort einhvers konar Ungverjagrýla væri orðin til svaraði Snorri hlæjandi:

„Þú bjóst hana til,“ og bætti svo við:

„Ég er ekki að hugsa um þetta sem einhverja Grýlu. Bara sem úrslitaleik. Það er á margan hátt forréttindastaða að vera í, að geta spilað hreinan úrslitaleik um að vinna riðilinn. Ef það gerist þá erum við komnir með tvö stig með okkur í milliriðil. Við þurfum frekar að horfa á þetta þannig en sem eitthvað vesen.“

Klippa: Snorri búinn undir úrslitaleik við Ungverja

Ísland hefur spilað tvo æsispennandi leiki til þessa og gert jafntefli við Serbíu en unnið Svartfjallaland með einu marki. Meira þarf til gegn Ungverjum að mati Snorra:

Þyngi ekki gaurana mína eða stækka þá

„Við þurfum að halda áfram að bæta okkur. Spila betur. Mér finnst þetta [Ungverjaland] vera besta liðið í riðlinum og við þurfum betri frammistöðu en í fyrstu tveimur leikjunum. Við höfum auðvitað oft spilað við þá og ég held að það viti allir hvað er að koma.

Markahæsti maðurinn þeirra [Bence Bánhidi] er línumaður og það er ekki bara að hann skori mörk. Allt spil þeirra snýst fáránlega mikið um hann. Það er á hreinu að ég þyngi ekki gaurana mína eða stækka þá, þannig að við þurfum bara að glíma við þetta. Ákveðnar stöður sem við þurfum við loka á en bjóða upp á aðrar. Mig langar að bjóða þeim upp á ákveðin skot utan af velli, og sjá hvort að Bjöggi og Viktor nái ekki að taka það. Ef það gengur eftir held ég að við séum í góðum málum,“ sagði Snorri.

Hann var í lokin spurður út í Hauk Þrastarson, sem ekkert hefur spilað á mótinu til þessa, en gaf lítið uppi:

„Þið eruð ansi klókir þú og Einar Örn [Jónsson, hjá RÚV]. Hver veit nema að hann sé ekki í hóp [í dag]?“

Næsti leikur Íslands er gegn Ungverjalandi í kvöld klukkan 19:30 að íslenskum tíma. Öflugt teymi Vísis er á staðnum og fjallar ítarlega um mótið í máli og myndum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×