Handbolti

Nú er nóg komið af ung­versku svekkelsi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
BJarki Már Elísson svekktur eftir tap á móti Ungverjum á HM í fyrra.
BJarki Már Elísson svekktur eftir tap á móti Ungverjum á HM í fyrra. Vísir/Vilhelm

Íslenska karlalandsliðið í handbolta mætir Ungverjalandi í kvöld í lokaleik sínum í riðlakeppni Evrópumótsins í handbolta í Þýskalandi.

Íslenska liðið er enn taplaust á mótinu og getur með sigri tryggt það að liðið fari með fullt hús í milliriðilinn.

Mótherjinn í kvöld, Ungverjaland, hefur unnið báða sína leiki á mótinu og er komið áfram fyrir lokaumferðina. Íslenska liðið gæti verið líka komið áfram ef Serbar ná ekki að vinna Svartfellinga í fyrri leik dagsins.

Það breytir ekki því að íslensku strákarnir eru í kvöld að fara að mæta fornum fjendum, liðinu sem hefur eyðilagt allt of marga drauma íslenska landsliðsins undanfarin ár.

Við erum í raun komin með nóg af ungversku svekkelsi og það er svo sannarlega kominn tími á að svekkja þá aðeins.

Hvað er verið að tala um? Jú, hér fyrir neðan má sjá nokkur af þessum mjög svo svekkjandi úrslitum á móti Ungverjum á stórmótum í handbolta.

Ásgeir Örn Hallgrímsson eftir tapleikinn á móti Ungverjum á Ólympíuleikunum í London 2012.Getty/Jeff Gross/

HM í Austur-Þýskalandi 1958

Ísland vann frábæran sigur á Rúmenum í leiknum á undan en tapaði með þriggja marka mun á móti Ungverjum, 16-19, í lokaleik liðanna í riðlakeppni. Úrslitin þýddu að Ungverjar komust áfram en Íslendingar sátu eftir.

HM í Tékkóslóvakíu 1964

Ísland vann frábæran sigur á Svíum í leiknum á undan og mátti tapa með fimm marka mun á móti Ungverjum í lokaleik riðilsins. Ungverjar unnu hins vegar níu marka sigur, 21-12, og komust áfram í átta liða úrslitin á kostnað Íslendinga.

HM í Sviss 1986

Íslenska liðið hafði unnið Tékka og Rúmena í síðustu tveimur leikjum sínum í riðlakeppninni en tapaði með einu marki á móti Ungverjum, 20-21, í fyrsta leik milliriðilsins. Möguleikar íslenska liðsins að spila um verðlaun dofnuðu snögglega við þessi úrslit.

HM í Kumamoto 1997

Íslenska liðið tapaði með einu marki á móti Ungverjum í átta liða úrslitum á HM 1997, 25-26, en þetta var eina tap íslenska liðsins á mótinu. Strákarnir enduðu í fimmta sæti eftir sigur á Spáni og Egyptalandi í leikjum um sæti fimm til átta.

Ólympíuleikar í London 2012

Íslenska liðið tapaði í tvíframlengdum leik á móti Ungverjum í átta liða úrslitum Ólympíuleikanna í London, 33-34, eftir að hafa unnið alla fimm leiki sína í riðlakeppninni. Snorri Steinn Guðjónsson gat tryggt íslenska liðinu sigur í venjulegum leiktíma en klúðraði víti þegar fjórtán sekúndur voru eftir. Íslenska liðið tapaði síðan eftir tvær framlengingar.

EM í Svíþjóð 2020

Íslenska liðið vann Dani og Rússa í tveimur fyrstu leikjum sínum á mótinu en fór stigalaust inn í milliriðil eftir sex marka tap á móti Ungverjum, 18-24, í lokaleiknum sínum. Það grátlega við þau úrslit er að íslenska liðið var fjórum mörkum yfir, 14-10, í upphafi seinni hálfleiksins.

HM í Póllandi og Svíþjóð 2023

Það er stutt frá síðasta svekkelsi á móti Ungverjum eða bara eitt ár. Íslenska liðið vann Portúgal í fyrsta leik sínum á heimsmeistaramótinu í fyrra en tapaði með tveggja marka mun, 28-30, á móti Ungverjum í leik tvö eftir að hafa verið fimm mörkum yfir í hálfleik, 17-12. 

Þegar átján mínútur voru eftir þá voru íslensku strákarnir sex mörkum yfir, 25-19, en þeir töpuðu síðan lokakafla leiksins með átta mörkum, 3-11. 

Íslenska liðið tók þar með bara tvö stig með sér í milliriðil. Íslenska liðið komst ekki í átta liða úrslitin þar sem að þessi sigur skilaði Ungverjum áfram þegar liðin enduðu með jafnmörg stig í milliriðlinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×