Innherji

Velur Al­vot­ech sem eina bestu fjár­festinguna í hluta­bréfum á árinu 2024

Hörður Ægisson skrifar
Hlutabréfaverð Alvotech í Kauphöllinni hér heima hefur hækkað um nærri helming frá því í byrjun nóvember í fyrra og er markaðsvirði félagsins núna á ný orðið meira en 500 milljarðar.
Hlutabréfaverð Alvotech í Kauphöllinni hér heima hefur hækkað um nærri helming frá því í byrjun nóvember í fyrra og er markaðsvirði félagsins núna á ný orðið meira en 500 milljarðar. Vísir/Vilhelm

Alvotech er í „einstakri“ stöðu til að verða leiðandi í þróun og framleiðslu á líftæknilyfjum, að sögn bandarísks hlutabréfagreinenda, sem hefur útnefnt íslenska félagið sem einn besta fjárfestingakostinn á hlutabréfamarkaði á þessu ári. Hlutabréfaverð Alvotech hefur verið mikilli siglingu, upp um meira en þriðjung á innan við mánuði, en í vikunni mæta fulltrúar bandaríska Lyfjaeftirlitsins til landsins til gera úttekt á framleiðsluaðstöðu fyrirtækisins og mun niðurstaða hennar ráða miklu um framhaldið.


Tengdar fréttir

Greinandi Citi hækkar verð­mat sitt á Al­vot­ech um hundrað prósent

Greinandi bandaríska fjárfestingabankans Citi, sem hefur mælt með sölu á bréfum í Alvotech frá því um haustið 2022, hefur nú uppfært verðmat sitt á íslenska líftæknilyfjafélaginu um hundrað prósent og ráðleggur fjárfestum að halda í bréfin. Hann er vongóður um að Alvotech verði fyrsta fyrirtækið til að komast inn á Bandaríkjamarkað með hliðstæðu við Humira, mesta selda lyf í heimi, í háum styrk og með útskiptileika.

Al­vot­ech með nýja um­sókn til FDA um markaðs­leyfi fyrir sitt stærsta lyf

Verulegur samdráttur varð í sölutekjum Alvotech á öðrum fjórðungi ársins, sem námu um sjö milljónum Bandaríkjadala, borið saman við tekjur fyrsta ársfjórðungs en íslenska líftæknilyfjafélagið hætti meðal annars samstarfi sínu við STADA á tímabilinu. Alvotech hefur skilað inn endurnýjaðri umsókn til Matvæla- og lyfjaeftirlits Bandaríkjanna (FDA) um markaðsleyfi fyrir sitt stærsta hliðstæðulyf sem það væntir að verði komið á markað vestanhafs í ársbyrjun 2024.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×