Legó á spottprís gleður flesta Markaðurinn Smáratorgi 22. desember 2023 11:14 Nýr markaður opnaði nýlega í gamla vöruhúsi Heimkaupa á Smáratorgi. Þar er lögð áhersla á gjafavörur fyrir jólin, eins og ýmsar jólavörur, búsáhöld og vörur fyrir heimilið, snjallryksugur, sjónvörp, fótboltavörur, Nespresso kaffivélar og önnur raftæki, leikföng og margt fleira á miklum afslætti. H. Smári Gröndal er verkefnastjóri hjá Markaðnum. Fyrr í desember var opnaður nýr markaður sem selur lagervörur frá hinum ýmsu birgjum og verslunum. Markaðurinn er í gamla vöruhúsi Heimkaupa á Smáratorgi. Þar má finna allt frá Lego vörum á 200 krónum til snjallryksuga og sjónvarpa á sannkölluðu lagerverði.
Í desember hefur áherslan verið á gjafavörur fyrir jólin en hægt er að finna ýmsar jólavörur, búsáhöld og vörur fyrir heimilið, snjallryksugur, sjónvörp, fótboltavörur, Nespresso kaffivélar og önnur raftæki, leikföng, og margt fleira á miklum afslætti. Markaðurinn býður upp á mjög gott úrval af Lego vörum. Nýjar vörur berast daglega og er því fyllt á hillurnar jafnóðum. Meðal þeirra vörumerkja sem hægt er að finna á lagersölunni eru vörur frá Bosch, Philips, LG, Nespresso, Iittala, Loreal, Nivea, Maybelline, United, Oroblu og Webers og mikið úrval af Lego leikföngum. Hægt er að gera góð kaup m.a. á gjafavörum, jólavörum og vörum fyrir heimilið. H. Smári Gröndal er verkefnastjóri hjá Markaðnum en hann hefur staðið vaktina frá því hann opnaði í síðustu viku. Hann segir aðdragandann að opnuninni hafa verið stuttan. „Við ákváðum með stuttum fyrirvara að slá til og opna Markaðinn hér á Smáratorgi og bjóða fólki að gera hagstæð kaup á hinum ýmsu vörum. Við fengum í lið með okkur nokkra öfluga birgja, bæði heildsölur og verslanir, sem hafa verið að koma með nýjar vörur daglega frá opnun.“ „Fjölbreytnin í vöruúrvali er sífellt að aukast, þó Legoið sem er á spottprís hafi komið flestum skemmtilega á óvart og gleðji mest,“ segir H. Smári Gröndal. Margir hafa tekið Markaðnum fagnandi, ekki síst vegna þess að margt fólk hefur minna milli handanna þetta árið vegna efnahagsástandsins að sögn H. Smára. „Viðtökur hafa verið frábærar og margir hafa náð að gera mjög hagstæð jólainnkaup. Fjölbreytnin í vöruúrvali er sífellt að aukast, þó Legoið sem er á spottprís hafi komið flestum skemmtilega á óvart og gleðji mest. En það er einstaklega gaman að sjá hvað fólk er ánægt þegar það gengur út frá okkur með fulla poka af jólagjöfum.“ Markaðurinn er opinn frá kl. 10-22 fram að jólum og er inngangurinn á efra bílastæðinu á móti Smáralind.
Verslun Jól Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Lífið Hvað veistu um... fugla? Lífið Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Lífið Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi Lífið Hvers vegna teljum við alla vera að dæma okkur (þegar enginn er að fylgjast með)? Áskorun Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Lífið Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Tónlist Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Lífið Fleiri fréttir Daría fagnar tíu árum – úr lítilli snyrtivöruverslun í lífsstílsverslun Hlaupa fyrir Ljósið í Reykjavíkurmaraþoninu Harpa býður heim á 15 ára afmæli á Menningarnótt Bylgjan fagnar 40 árum með stórveislu á Menningarnótt Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Golfmót FM957 Vinsælasta ABBA-sýning heims í Hörpu og Hofi „Ísland, biðin er á enda!“ Loksins hægt að panta ilmvötn á Boozt Allt undir einu þaki í hjarta Hafnarfjarðar „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Afmælisbomba í Beautybox og verk Sögu Sig í pottinum Þurrsjampó eru ekki öll eins, svona velur þú réttu vöruna fyrir þitt hár Pylsur eins og þú hefur líklega aldrei grillað þær áður Frá jólamörkuðum Evrópu til ævintýra í Asíu og Afríku Grillaður Gaggalagú með leynisósu landsliðskokksins Sjá meira