Innherji

Mikill árangur að upp­gangur síðustu ára hafi ekki valdið of­þenslu í banka­kerfinu

Hörður Ægisson skrifar
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir að til lengri tíma þá séu háir vextir óheppilegir fyrir banka. Það sé reynslan af bankarekstri að þeir lántakar sem eru við slíkar aðstæður viljugir til að greiða háa vexti eru jafnan þeir ótryggustu og síður líklegir til að geta staðið í skilum.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir að til lengri tíma þá séu háir vextir óheppilegir fyrir banka. Það sé reynslan af bankarekstri að þeir lántakar sem eru við slíkar aðstæður viljugir til að greiða háa vexti eru jafnan þeir ótryggustu og síður líklegir til að geta staðið í skilum. Stöð 2/Ívar Fannar

Það er eftirtektarverður árangur, sem má meðal annars þakka ströngu regluverki og góðri áhættustýringu bankanna, að þrátt fyrir mikinn uppgang í hagkerfinu þá hefur það ekki framkallað lánabólu eða ofþenslu í fjármálakerfinu. Til lengri tíma litið er hins vegar hætta á að háir vextir grafi undan eignagæðum í lánabókum bankanna, að sögn seðlabankastjóra, en erlendar fjármálastofnanir eru nú farnar að bjóða í suma af þeirra stærstu viðskiptavinum. 


Tengdar fréttir

Sitja ekki á ó­inn­leystu tapi vegna skulda­bréfa sem hafa lækkað í verði

Íslensku viðskiptabankarnir fjórir sitja ekki á neinu óinnleystu tapi í bókum sínum í tengslum við mörg hundruð milljarða króna eign þeirra í skuldabréfum en ólíkt því sem átti við um Silicon Valley Bank (SVB), sem varð gjaldþrota fyrir helgi, eru slík verðbréf metin á markaðsvirði í reikningum bankanna hér á landi. Margir evrópskir bankar beita hins vegar sömu aðferð og SVB þar sem skuldabréfasafn þeirra er metið á kostnaðarverði en meðal annars vegna sterkrar lausafjárstöðu er ólíklegt að bankarnir neyðist til að selja þau bréf með afföllum, samkvæmt nýrri greiningu Moody´s.

Láns­hæfis­ein­kunn ís­lenska ríkisins hækkar í fyrsta sinn frá 2019

Matsfyrirtækið S&P Global Ratings hefur hækkað lánshæfiseinkunn Íslands úr A í A+, sem endurspeglar útlit fyrir áframhaldandi kraftmikinn hagvöxt, en ef opinber fjármál styrkjast meira en nú er áætlað gætu verið forsendur fyrir enn frekari hækkun. Líklegt er að hækkun á lánshæfiseinkunn ríkissjóðs muni í framhaldinu sömuleiðis skila sér í uppfærslu á lánshæfismati íslensku bankanna en S&P gerir ráð fyrir að arðsemi þeirra verði áfram sterk sem geri þá vel í stakk búna til að mæta mögulegum auknum útlánatöpum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×