Handbolti

Ýmir yfir­gefur Löwen en verður á­fram í Þýska­landi

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ýmir Örn Gíslason er lykilmaður í vörn Rhein-Neckar Löwen og íslenska landsliðsins.
Ýmir Örn Gíslason er lykilmaður í vörn Rhein-Neckar Löwen og íslenska landsliðsins. getty/Jürgen Fromme

Landsliðsmaðurinn í handbolta, Ýmir Örn Gíslason, yfirgefur Rhein-Neckar Löwen næsta sumar. Hann hefur leikið með liðinu síðan í febrúar 2020.

Löwen greindi frá þessu á heimasíðu sinni í dag. Þar segir að Ýmir verði áfram í þýsku úrvalsdeildinni en ekki kemur fram til hvaða liðs hann fer.

Sem fyrr sagði kom Ýmir til Löwen frá Val í febrúar 2020. Hann hefur alls leikið 158 leiki fyrir Löwen í öllum keppnum og skorað 87 mörk.

Ýmir varð bikarmeistari með Ljónunum frá Mannheim á síðasta tímabili. Liðið vann þá Magdeburg í bikarúrslitum.

Löwen er í 6. sæti þýsku úrvalsdeildarinnar með sautján stig eftir fimmtán leiki. Næsti leikur liðsins er gegn Lemgo á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×