Fótbolti

Læri­sveinar Pirlo steinlágu fyrir Birki og fé­lögum í Brescia

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Birkir Bjarnason stillti sér upp í þriggja manna framlínu Brescia.
Birkir Bjarnason stillti sér upp í þriggja manna framlínu Brescia. VÍSIR/GETTY

Birkir Bjarnason setti annað mark sitt í síðustu þremur leikjum þegar Brescia lagði Sampdoria örugglega að velli. Lærisveinar Andrea Pirlo klóruðu í bakkann undir lokin eftir algjöra yfirburði Brescia og minnkuðu muninn í 3-1, sem urðu lokatölur leiksins.

Alexander Jallow setti opnunarmarkið strax á 10. mínútu, Gennaro Borrelli tvöfaldaði svo forystuna eftir klaufalegan varnarleik Sampdoria og Birkir Bjarnason fullkomnaði fyrri hálfleik Brescia með þriðja markinu rétt áður en hálfleiksflautið gall.

Yfirburðir Brescia í fyrri hálfleiknum gaf þeim góðan slaka í þeim seinni, þeir nýttu allar fimm skiptingar sínar og hægðu vel á leiknum. Sampdoria minnkaði muninn undir blálokin en það var heldur seint í rassinn gripið og niðurstaðan að endingu öruggur sigur hjá Brescia.

Þeir berjast ásamt Sampdoria um miðja næstefstu deild á Ítalíu, með 18 stig eftir 15 leiki og í 11. sæti en Sampdoria er tveimur stigum fyrir aftan þá í 14. sætinu. Þetta var þriðja mark Birkis í fjórtán leikjum á tímabilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×