Fótbolti

Emelía tryggði Köge sigur

Valur Páll Eiríksson skrifar
Emelía spilaði hálftíma í sigri dagsins.
Emelía spilaði hálftíma í sigri dagsins. Mynd/HB Köge

Landsliðskonan Emelía Óskarsdóttir spilaði síðasta hálftímann og skoraði sigurmarkið 2-1 sigri HB Köge á Fortuna Hjörring í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Emelía byrjaði á bekknum hjá dönsku meisturunum er þeir tóku á móti Fortuna Hjörring í dag.

Mille Gejl kom Köge yfir þegar rúmlega korter var liðið á leikinn og staðan var 1-0 í hálfleik fyrir heimakonur.

Skammt var liðið á síðari hálfleik þegar Bandaríkjakonan Kaitlyn Parcell jafnaði leikinn fyrir gestina á 54. mínútu. Skömmu eftir það var gerð þreföld skipting á liði Köge og Emelía Óskarsdóttir á meðal þeirra sem kom inn á.

Skiptingin skilaði árangri þar sem Emelía skoraði sigurmark Köge í leiknum á 72. mínútu.

Köge vann 2-1 sigur og er með 32 stig á toppi deildarinnar eftir 13 leiki, sjö stigum á undan Nordsjælland sem er í öðru sæti.

Emelía var að spila sinn tíunda leik með Köge í deildinni í ár, og hefur þar af byrjað sex, og skorað fimm mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×