Viðskipti innlent

Nýr pítsustaður í Vestur­bæinn

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Palli, Valli og Pizza 107 sem verður take-away staður í anda Jóns Bakans.
Palli, Valli og Pizza 107 sem verður take-away staður í anda Jóns Bakans. Vísir/vilhelm

Pítsustaður bætist í flóru veitingastaða í vesturbæ Reykjavíkur í dag þegar Pizza 107 opnar dyrnar í Úlfarsfelli. Valgeir Gunnlaugsson er maðurinn á bak við staðinn og með honum í liði er söngvarinn Páll Óskar.

Viðskiptablaðið greindi fyrst frá.

Félagarnir ráku annan af tveimur indverskum veitingastöðum sínum í sama rými undir merkinu Indican. Valgeir, betur þekktur sem Valli flatbaka, er þó pítsumaður í húð og hár.

„Við vorum með tvo Indican staði en ég vildi fara aftur í pítsurnar. Það er alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt en mig var farið að klæja í puttana að komast aftur í deigið,“ segir Valli.

Staðurinn verður opnaður í rólegheitum klukkan fimm í dag. Svo verður hefðbundinn opnunartími frá hálf tólf í hádeginu fram á kvöld.

„Við erum að klára að negla síðustu naglana í veginn, eins og sagt er. Fólk getur komið seinni partinn og fengið sér í kvöldmatinn. Þeir allra spenntustu,“ segir Valli.

Um árabil var bókabúðin Úlfarsfelli rekin í þessu rými. Búð sem margur vesturbæingurinn man vel eftir og saknar. Í nostalgíunni sem einkennir Íslendinginn.

„Okkur langar einmitt að fara smá aftur til fortíðar. Reyna að ná upp stað eins og gamla Jón bakan, Pizzahöllin, Hrói höttur og staðir þess tíma,“ segir Valli.

Margir muna eftir pítsunum hjá Jóni bakan.

Þeir Páll Óskar hafi lagt mikla vinnu í að lappa upp á staðinn.

„Gera hann hlýrri. Ná upp gömlu hlýjunni sem var í Úlfarsfells bókabúðinni. Fara aftur í þann tíðaranda. Við erum búnir að sanka að okkur rosalega mörgum gömlum myndum úr vesturbænum, úr þessu hverfi, sem verða hangandi uppi á vegg. Við erum í nostalgíufíling.“

Pítsustaðurinn verður í póstnúmeri 107 og er búið að koma fyrir 107 skrautljósaperum í loftinu.

Valli og félagar eru á lokametrunum að gera allt klárt.vísir/vilhelm

„Þetta er ákveðið listaverk.“

Bæði verður í boði að kaupa tólf tommu og sextán tommu pítsur sem verða bakaðar í steinofni.

„Við verðum með aðlaðandi tilboð fyrir einstaklinga, fjölskyldur og stærri hópa.“

Ýmis rekstur hefur verið reyndur í rýminu síðan bókabúðinni var lokað um miðjan síðasta áratug. Þar var Fisherman með sælkerabúð um tíma en kórónuveirufaraldurinn fór illa með reksturinn að sögn eigandans.

Við tók pítsustaðurinn Plútó sem rekinn var í tvö ár. Svo reyndu Valli og Palli fyrir sér með Indican.

„Það lá í loftinu að við myndum breyta þessu í pítsustað. Okkur langar að ná upp hverfisstemmningu. Sætir og litlir á horninu að dúlla okkur að gera góðar pítsur.“

Hann segir Pál Óskar ofurspenntan fyrir verkefninu.

„Hann hefur svo gaman af þessu. Palli ætlar að standa vaktina líka og það má alveg biðja hann um selfie. Það er ekkert mál,“ segir Valli og hlær.


Tengdar fréttir

Ákváðu að fara í allan pakkann

„Það var auðvelt fyrir hann að selja mér pælinguna,“ segir Camilla Rut Rúnarsdóttir athafnakona og áhrifavaldur, um ákvörðunina að flytja inn með kærastanum, Valgeiri Gunnlaugssyni, oft þekktur sem Valli Flatbaka, í parhús á Seltjarnarnesi.

Valli flatbaka segir skilið við Flatbökuna

Valgeir Gunnlaugsson hefur verið þekktur sem Valli flatbaka síðan hann stofnaði pizzustaðinn Íslensku flatbökuna. Nú verður þó breyting þar á þar sem Valgeir hefur selt reksturinn.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×