„Markmið okkar er að vera í takt við nýjustu strauma og stefnur úti í heimi hverju sinni. Paula´s Choice hefur verið eitt heitasta húðvörumerki í heimi og hefur það verið draumur okkar að geta selt þetta vörumerki í verslun okkar á Íslandi,” segja eigendur Maí verslunar, þær Karen Finsen og Sigrún Guðmundsóttir.

Vörurnar hafa fengið afar góð viðbrögð enda um hágæða innihaldsefni að ræða. Vörulína Paula´s Choice inniheldur sýrur, serum og krem en sýrutónerinn Skin Perfecting 2% BHA liquid Exfoliant hefur verið þeirra söluhæsta vara frá upphafi.
Kynningarafsláttur 2. nóvember
Helsta sérstaða Paula´s Choice eru hrein og virk innihalds efni sem takast á við margskonar húðvandamál eins og unglingabólur, öldrun húðarinnar og ójafnan húðlit. Verslunin býður þess vegna upp á 20% kynningarafslátt af þessari vörulínu út 2. nóvember.
„Viðtökurnar hafa verið vonum framar og viðskiptavinir okkar hafa tjáð okkur ánægju sína yfir því að Paula´s Choice sé loksins fáanlegt á Íslandi,” segja Karen og Sigrún en viðræður við vörumerkið tóku yfir eitt og hálft ár.

Bjóða upp á vörumerki sem slegið hafa í gegn
Þær Karen Finsen og Sigrún Guðmundsóttir tóku við rekstri verslunarinnar árið 2020 en Maí var stofnuð árið 2016. Karen og Sigrún fóru strax í miklar breytingar á versluninni og leggja áherslu á fjölbreytt vöruúrval af húð- og snyrtivörum og skartgripum ásamt ýmsum gjafavörum. Þær hafa lagt allan kraft í að bjóða upp á vinsæl vörumerki sem hafa slegið í gegn um allan heim og má þar nefna vörumerki eins og The Ordinary, Sol de Janeiro, Eco by Sonya, Benefit og Laura Mercier.
Karen og Sigrún hafa lagt upp með að bjóða upp á hraða og góða þjónustu og að verslunin taki vel á móti viðskiptavinum með hlýju og góðu andrúmslofti. Verslun er staðsett á Garðatorgi 4 en búðin er vel skipulögð með húðvörur í aðalhlutverki í bland við aðrar síbreytilegar gjafavörur.
Vörurnar frá The Ordinary eru þekktar fyrir virkni

The Ordinary vörurnar hafa slegið í gegn síðustu ár og er eitt vinsælasta húðvörumerki heims en vörurnar eru þekktar fyrir virk og hrein innihaldsefni auk þess að vera án allra ilmefna. Vörulínan er á mjög viðráðanlegu verði þrátt fyrir góð gæði og gefur öðrum lúxusvörumerkjum lítið eftir.
Fallegur og náttúrulegur litur

Face Tan Water hefur verið ein okkar allra vinsælasta vara frá upphafi en þessi einstaka vara frá Eco By Sonya er tilnefnd til fjölda verðlauna og ekki að ástæðulausu. 100% náttúruleg og lífræn eins og aðrar vörur frá Eco By Sonya.
Fyrsta sending seldist upp

Eitt það allra heitasta um þessar mundir er vörulínan frá Sol de Janeiro en þessar vörur hafa slegið rækilega í gegn og fyrsta sending frá þeim seldist upp á methraða. Síðan þá höfum við verið að bæta í vöruúrvalið en ásamt vinsælu líkamsvörunum sem innihalda meðal annars krem og ilmvötn þá framleiða þeir einnig frábærar vörur fyrir hárið.
Flott hulstur fyrir Iphone

Holdit er sænskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í símahulstrum en við tókum vörumerkið inn í vor og urðu þau strax gríðarlega vinsæl í sölu. Símahulstrin eru fyrir flestar gerðir af Iphone og koma í allskonar mismunandi litum og var því gaman að geta bætt þessu flotta vörumerki í verslun okkar.
Spennandi viðbót við vöruúrval Maí

Benefit er snyrtivörumerki sem er væntanlegt í nóvember. En Hoola bronzer er ein af þeirra vinsælustu vörum og verður væntanleg á næstu dögum.
Maí er með snyrtivörumerkið Laura Mercier en ný sending er einnig væntanleg á næstum dögum.

Hægt er að finna allt úrvalið inn á vefsíðunni mai.is en þær eru einnig staðsettar á Garðatorg 4 í Garðabæ, mælum með heimsókn í þeirra glæsilegu verslun. Karen og Sigrún segjast spenntar fyrir komandi tímum með ný og spennandi vörumerki.