Handbolti

Lærisveinar Dags á Ólympíuleikana en Aron situr eftir með sárt ennið

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Dagur Sigurðsson er á leið á Ólympíuleikana með japanska landsliðið.
Dagur Sigurðsson er á leið á Ólympíuleikana með japanska landsliðið. TF-Images/TF-Images via Getty Images

Dagur Sigurðsson og lærisveinar hans í japanska karlalandsliðinu í handbolta tryggðu sér farseðilinn á Ólympíuleikana í París á næsta ári er liðið vann þriggja marka sigur gegn Aroni Kristjánssyni og lærisveinum hans frá Barein í gær.

Japan og Barein höfðu unnið sér inn sæti í úrslitaleik um sæti á Ólympíuleikunum með sigrum gegn Suður-Kóreu og Katar fyrr í vikunni. Japanska liðið vann öruggan ellefu marka sigur gegn Suður-Kóreu, 34-23, en Barein vann dramatískan eins marks sigur gegn Katar, 30-29.

Japanska liðið hafði yfirhöndina stærstan hluta leiksins gegn Barein í gær og leiddi með fimm mörkum þegar flautað var til hálfleiks, staðan 18-13.

Aron og lærisveinar hans klóruðu í bakkann í síðari hálfleik, en náðu ekki að brúa bilið og niðurstaðan varð þriggja marka sigur Japan, 32-29.

Dagur Sigurðsson og lærisveinar hans eru því á leið á Ólympíuleikana í París á næsta ári, en Aron Kristjánsson og lærisveinar hans sitja eftir með sárt ennið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×