Innherji

Erlend fjármálafyrirtæki ná aukinni markaðshlutdeild í gjaldeyrislánum

Helgi Vífill Júlíusson skrifar
„Ákaflega sterk fjárhagsstaða gefur okkur færi á annað hvort að greiða hluta til hluthafa eða fjármagna vöxt á næstu árum,“ sagði Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka.
„Ákaflega sterk fjárhagsstaða gefur okkur færi á annað hvort að greiða hluta til hluthafa eða fjármagna vöxt á næstu árum,“ sagði Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka. Vísir/Vilhelm

Uppgjör Íslandsbanka á þriðja ársfjórðungi var undir væntingum greinenda. Bankastjóri bankans upplýsti að erlend fjármálafyrirtæki hafi aukið við markaðshlutdeild sína í útlánum í erlendum gjaldeyri til fyrirtækja hérlendis í ljósi hærri kostnaðar hjá íslenskum bönkum. Hann taldi að lífeyrissjóðir myndu auka við markaðshlutdeild sína í verðtryggðum húsnæðislánum. Bankinn hafi umtalsvert fé aflögu til að greiða til fjárfesta eða nýta í vöxt sem annars dragi úr arðsemi hans.


Tengdar fréttir

Ný út­lán til fyrir­tækja skreppa saman í fyrsta sinn í nærri tvö ár

Áfram heldur að hægja nokkuð á lánavexti bankakerfisins til atvinnulífsins en hrein ný útlán drógust saman í september, einkum vegna uppgreiðslu á lánum fyrirtækja í samgöngum, í fyrsta sinn frá því undir árslok 2021. Ekkert lát er hins vegar á ásókn heimila yfir í verðtryggð lán en þriðja mánuðinn í röð var nýtt met slegið í slíkum lánum með veði í íbúð.

Mark­að­ur­inn ver­ið í „fýlu í lang­an tíma“ og van­met­inn um 37 prós­ent

Að meðaltali eru félögin sem Jakobsson Capital fylgir vanmetin um 36,5 prósent. „Markaðurinn er búinn að vera í gríðarlegri fýlu í langan tíma,“ segir í hlutabréfagreiningu. „Ólíklegt er að Seðlabankinn hækki vexti mikið meira“  en ósennilegt þykir að hlutabréfamarkaðurinn „taki mikið við sér áður en vextir lækka á ný.“

Grein­­and­­i gagn­r­ýn­­ir Ís­lands­b­ank­­a fyr­­ir lé­­leg­­a upp­­­lýs­­ing­­a­­gjöf við sekt FME

Hlutabréfagreinandi gagnrýnir Íslandsbanka fyrir að hafa ekki upplýst markaðinn fyrr hve alvarlegum augum Fjármálaeftirlit Seðlabankans (FME) leit brot bankans í tengslum við sölu á eigin bréfum. Þá hefði Jakobsson Capital lagt aukið álag á ávöxtunarkröfu Íslandsbanka – sem stuðlar að lægra verðmati – við upphaf árs.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×