Fótbolti

Sá markahæsti framlengir við Skagamenn

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Viktor Jónsson leikur með ÍA næsti tvö tímabil í það minnsta.
Viktor Jónsson leikur með ÍA næsti tvö tímabil í það minnsta. Vísir/Hulda Margrét

Viktor Jónsson, leikmaður ÍA, hefur framlengt samningi sínum við félagið út tímabilið 2025.

Viktor átti frábært tímabil með Skagamönnum í sumar þar sem hann skoraði 20 mörk í 22 leikjum og átti þar með stóran þátt í því að liðið vann sér inn sæti í Bestu-deildinni. ÍA fagnaði sigri í Lengjudeildinni og Viktor var markahæsti maður deildarinnar.

Skagamenn greina frá tíðindunum á samfélagsmiðlum sínum, en Viktor gekk til liðs við ÍA árið 2019 frá Þrótti. Síðan þá hefur hann leikið 132 leiki fyrir félagið og skorað 60 mörk.

Viktor er annar leikmaðurinn sem framlengir samningi sínum við ÍA í dag, en Jón Gísli Eyland Gíslason gerði slíkt hið sama fyrr í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×