Körfubolti

Njarðvíkingum hefur ekki tekist að slá Keflavík út úr bikarnum í tæp nítján ár

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Njarðvíkingurinn Mario Matasovic treður boltanum í körfuna í leik Njarðvíkur og Keflavíkur.
Njarðvíkingurinn Mario Matasovic treður boltanum í körfuna í leik Njarðvíkur og Keflavíkur. Vísir/Hulda Margrét

Keflavík hefur haft gott tak á nágrönnum sínum úr Njarðvík þegar kemur að bikarleikjum liðanna undanfarna tvo áratugi.

Keflavík sló Njarðvík út úr bikarkeppninni í fyrra og var það sjötti bikarsigur Keflavíkur í röð á móti Njarðvík.

Liðin mætast í 32 liða úrslitum VÍS bikarsins í Ljónagryfjunni í Njarðvík í kvöld. Það er því þegar ljóst að annað Reykjanesbæjarliðið spilar aðeins einn bikarleik á þessari leiktíð.

Keflavík vann þrettán stiga sigur á Njarðvík í átta liða úrslitum í fyrra, 99-86. Dominykas Milka, núverandi leikmaður Njarðvíkur, var með 22 stig, 10 fráköst og 3 stolna bolta fyrir Keflavík í leiknum en hann hitti úr 64 prósent skota sinna í leiknum og var með 30 framlagsstig á innan við 29 spiluðum mínútum.

Aðeins þrír af þeim níu Keflvíkingum sem spiluðu leikinn eru enn hjá liðinu eða þeir Igor Maric, Jaka Brodnik og Halldór Garðar Hermannsson. Hjá Njarðvíkingum eru aðeins tveir eftir af þeim átta sem spiluðu þennan leik fyrir tæpu ári síðan eða þeir Maciek Baginski og Mario Matasovic. Liðin hafa því breyst mikið frá því í fyrra.

Keflvíkingar unnu einnig síðasta bikarleik liðanna í Ljónagryfjunni í Njarðvík eða þegar þeir unnu fimm stiga sigur á Njarðvík, 73-68, í sextán liða úrslitum 8. desember 2019. Milka var líka með stórleik fyrir Keflavík í þeim en hann bauð þá upp á 25 stig, 11 fráköst og 64 prósent skotnýtingu.

Það þarf að fara alla leið aftur til 9. janúar 2005 til að finna bikarleik Njarðvíkur og Keflavíkur þar sem Njarðvíkingar fögnuðu sigri. Njarðvík vann þá þriggja stiga sigur í Keflavík, 88-85, í átta liða úrslitum. 

Anthony Lackey skoraði 30 stig fyrir Njarðvík og Brenton Birmingham var með 22 stig og 12 stoðsendingar. Anthony Glover var með 30 stig fyrir Keflavík og Nick Bradford skoraði 21 stig og tók 12 fráköst.

  • Síðustu bikarleikir Njarðvíkur og Keflavíkur:
  • 2022: Keflavík vann 99-96 í Keflavík
  • 2019: Keflavík vann 73-68 í Njarðvík
  • 2016: Keflavík vann 97-91 í Keflavík
  • 2013: Keflavík vann 102-91 í Keflavík
  • 2010: Keflavík vann 93-73 í Keflavík
  • 2006: Keflavík vann 98-85 í Keflavík
  • 2005: Njarðvík vann 88-85 í Keflavík



Fleiri fréttir

Sjá meira


×