Körfubolti

Suður­nesja­slagur í fyrstu um­ferð bikarsins

Smári Jökull Jónsson skrifar
Dominykas Milka verður í Njarðvíkurbúning í vetur og mætir gömlu félögum sínum í Keflavík í VÍS-bikarnum.   Haukur Helgi Pálsson er hins vegar genginn til liðs við Álftanes ásamt Herði Axel Vilhjálmssyni en þeir halda í Borgarnes og mæta Skallagrími.
Dominykas Milka verður í Njarðvíkurbúning í vetur og mætir gömlu félögum sínum í Keflavík í VÍS-bikarnum. Haukur Helgi Pálsson er hins vegar genginn til liðs við Álftanes ásamt Herði Axel Vilhjálmssyni en þeir halda í Borgarnes og mæta Skallagrími. Vísir/Vilhelm

Dregið var í 32-liða úrslit VÍS-bikarsins í körfuknattleik í dag. Stórleikur verður strax í fyrstu umferðinni en umferðin fer fram í lok október.

Alls eru 25 lið skráð til leiks í karlaflokki og því sjö lið sem ekki voru dregin úr pottinum í dag og komast því sjálfkrafa áfram í 16-liða úrslit.

Stórleikur umferðarinnar er án efa slagur Suðurnesjarisanna Njarðvíkur og Keflavíkur. Þá drógust Stjarnan og Þór Þorlákshöfn saman og mætast í Garðabæ og Íslandsmeistarar Tindastóls fara í Breiðholtið og mæta þar ÍR sem féll úr Subway-deildinni á síðasta tímabili.

Viðureignir 32-liða úrslita

KR b - Ármann

Fjölnir - ÍA

Skallagrímur - Álftanes

Stjarnan - Þór Þ

Þór Ak. - Haukar

ÍR - Tindastóll

Vestri - Valur

Snæfell - Höttur

Njarðvík - Keflavík

Í kvennaflokki var aðeins dregið í eina viðureign. KR fær Njarðvík á heimavelli sínum en Ármann, Aþena, Breiðablik, Fjölnir, Grindavík, Hamar/Þór, Haukar, ÍR, Keflavík, Keflavík b, Snæfell, Stjarnan, Tindastóll, Valur og Þór frá Akureyri sitja öll hjá og verða í pottinum þegar dregið verður í 16-liða úrslit.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×