Innlent

Sigldi sjö tonna skipi skakkur

Árni Sæberg skrifar
Maðurinn stýrði skipinu í ótilgreinda höfn á Vestfjörðum. Þetta er höfnin á Bíldudal.
Maðurinn stýrði skipinu í ótilgreinda höfn á Vestfjörðum. Þetta er höfnin á Bíldudal. Vísir/Vilhelm

Karlmaður hefur verið dæmdur til þriggja mánaða fangelsisvistar fyrir að stjórna skipi til hafnar ófær um að stjórna því örugglega vegna áhrifa vana-og fíkniefna, en í blóði hans mældist kannabis. Þá stýrði hann skipinu án þess að hafa til þess gild réttindi.

Í dómi Héraðsdóms Vestfjarða segir að maðurinn hafi verið ákærður fyrir að hafa árið 2022 brotið gegn siglingalögum og lögum um áhafnir skipa með því að hafa í starfi sínu sem skipstjóri á fiskiskipi, sem er 7,48 brúttótonn, 9,25 metrar að skráðri lengd og með 190,40 kW aðalvél stjórnað skipinu á leið til hafnar, ófær um að stjórna því örugglega vegna áhrifa ávana-og fíkniefna, en í blóði hans hafi mælst tetrahýdrókannabínól, 7,4 ng/ml.

Þá hafi hann sem skipstjóri á skipinu, stjórnað því, án þess að lögskrá sig sem skipstjóra á skipið, en hann hafi verið eini skipverjinn og án þess að hafa verið með gilt skírteini til skipstjórnar, á tímabilinu 4. maí 2022 til 18. júlí 2022, en hann hafi farið samtals tuttugu sjóferðir sem skipstjóri á skipinu á þessu tímabili. Og fyrir að hafa ranglega lögskráð annan mann sem skipstjóra á skipið frá 27. apríl 2022 til 31. ágúst 2022, en hann hafi enga sjóferð farið og ekki stjórnað skipinu á tímabilinu.

Mætti ekki 

Maðurinn mætti ekki þegar málið var þingfest og var því farið með málið eins og hann hefði játað þá háttsemi sem hann var ákærður fyrir.

„Þar sem það er mat dómsins að gögn málsins sýni með fullnægjandi hætti að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru verður hann sakfelldur fyrir þá háttsemi,“ segir í dóminum.

Með vísan til sakaferils mannsins, og sérstaklega fyrri dóms sem hann hlaut árið 2021 og rof skilorðs þess dóms, var maðurinn dæmdur til þriggja mánaða óskilorðsbundinnar refsingar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×