Innlent

Taldi særðri dóttur sinni trú um að þau ættu í ástarsambandi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness í dag.
Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Vísir/vilhelm

Rúmlega fertugur karlmaður og barnaníðingur á suðvesturhorni landsins hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að nauðga fimmtán ára dóttur sinni ítrekað. Hann endurnýjaði kynni við dóttur sína vitandi að hann glímdi við barnagirnd. Hann þarf að greiða dóttur sinni sex milljónir króna í miskabætur.

Karlmaðurinn játaði að hafa endurtekið haft samræði við dóttur sína en aldrei gegn vilja barnsins. Um hefði verið að ræða ástarsamband. Héraðsdómur taldi skýringar föður fjarstæðukenndar og brotin svívirðileg.

Rétt er að vara lesendur við lýsingum sem fram koma í fréttinni.

Stúlka í sorg

Forsaga málsins er sú að karlmaðurinn umgekkst ekkert dóttur sína frá því hún var sex til sjö ára. Ekki kemur fram í dómi Héraðsdóms Reykjaness hvers vegna. Dóttirin bjó með móður sinni og stjúpföður. Stjúpfaðirinn lést og reyndist föðurmissirinn stúlkunni þungbær. Hófust í framhaldinu aftur regluleg samskipti dótturinnar við blóðföður sinn.

Maðurinn var ákærður fyrir að hafa á tímabilinu frá 25. júlí 2022 til 13. janúar 2023, með ólögmætri nauðung og án samþykkis, haft samræði og önnur kynferðismök við barnið og áreitt það kynferðislega.

Maðurinn hafi margsinnis haft samræði og endaþarmsmök við barnið, látið barnið hafa við sig munnmök, sleikt kynfæri barnsins, farið með fingur inn í kynfæri þess og káfað á brjóstum þess og tekið myndir og myndskeið af því þegar hann beitti barnið framangreindu kynferðisofbeldi, en hann hafi nýtt sér freklega yfirburði sína sem faðir og að barnið var eitt með honum fjarri öðrum.

Gríðarlegt magn barnaníðsefnis

Brot mannsins voru sögð hafa verið framin í fjórum íbúðum sem maðurinn hafði á leigu á mismunandi tímabilum, í bifreið, á dvalarstað hans á vinnustað hans og á þremur ótilgreindum stöðum.

Maðurinn var einnig ákærður fyrir kynferðisbrot með því að framleiða myndir og myndskeið af barninu sem hann tók á síma sinn og á síma barnsins, samtals 27 myndir og níu myndskeið, sem hann tók á sex mánaða tímabilinu sem sýna kynferðislega misnotkun á barninu og sýna það á kynferðislegan hátt.

Þá var hann ákærður fyrir að hafa um nokkurt skeið og fram til þriðjudagsins 18. apríl 2023, haft í vörslum sínum tvær fartölvur og tvo flakkara sem innihéldu samtals 37.742 ljósmyndir og 634 kvikmyndir sem sýna börn á kynferðislegan hátt og tvo síma sem innihéldu 41 mynd sem sýna börn á kynferðislegan hátt.

Loks var maðurinn ákærður fyrir brot gegn vopnalögum með því að hafa haft í vörslum sínum handjárn sem lögreglan lagði hald á við húsleit á dvalarstað hans.

Vissi af barnagirnd sinni

Í niðurstöðu Héraðsdóms Reykjaness kemur fram að það hafi reynst stúlkunni mikil gleðitíðindi og vakið henni von í brjósti að ná endurfundum við föður sinn eftir fráfall stjúpföður. Fyrstu mánuðina hafi samskiptin verið eðlileg.

Stúlkan hafi ekki vitað frekar en aðrir tengdir henni að faðir hennar hafði tíu árum fyrr viðurkennt fyrir sjálfum sér að hann bæri kynferðislega girnd til barna og þá sérstaklega stúlkubarna. Undir þeim kringumstæðum hóf hann samband við barnið sitt að nýju; barn sem átti afar erfitt uppdráttar eftir föðurmissi. Barn sem þráði ekkert heitar en að eignast föður á ný.

Taldi héraðsdómur óhjákvæmilegt að meta endurfundi feðginanna í þessu ljósi.

Hótaði að drepa sig

Stúlkan greindi frá því hjá lögreglu og fyrir dómi að þegar leið á sumarið 2022 hafi samband þeirra orðið skrýtna og skrýtnara. Alltaf sofið í sama rúmi þar faðirinn káfaði eitt kvöld á dóttur sinni og hafði í framhaldinu samræði við hana. Frá þeim tíma hafi sambandið verið af kynferðislegum toga.

Stúlkan sagði föður sinn hafa talið sér trú um að um ástarsamband væri að ræða og allt væri þetta eðlilegt í ástríkum samskiptum föður og barns. Samskiptin ollu stúlkunni vaxandi áhyggjum og vanlíðan. Mikið var rifist og hótaði faðirinn að drepa sig ef dóttirin kæmi ekki með honum í ferð til Bandaríkjanna.

Eftir þá ferð og dvöl á hóteli í Reykjavík í framhaldinu hafi dóttirin neitað að hitta föður sinn. Á sextán ára afmæli stúlkunnar hafi faðirinn sagst hafa keypt fyrir þau flugmiða og ef dóttirin vildi ekki koma með þá myndi hann hætta að tala við hana.

Vanvirðing fyrir persónu dóttur sinnar

Faðirinn gekkst eftir nokkrar skýrslutökur við því að hafa tekið kynferðislegar myndir og myndskeið af dóttur sinni. Þau hefðu oft tekið slíkt myndefni hvort af öðru. Af myndefninu sem fannst hjá föðurnum benti ekkert til annars en að stúlkan hefði í öllum tilfellum verið meginviðfang efnanna og voru myndskeiðin mörg hver gróf.

Faðirinn sagðist í skýrslutöku þykja gríðarlega vænt um dóttur sína og myndi aldrei gera neitt á hennar hlut sem hún vildi ekki eða samþykkti. Gekkst hann við því að hafa haft samræði tíu sinnum við dóttur sína en hún taldi skiptin hafa verið mun fleiri.

Héraðsdómi þótti framburður föðurins í heild fela í sér mikla vanvirðingu fyrir persónu og tilfinningalífi dóttur hans og samræmast þeirri læknisfræðilegu greiningu að faðirinn væri haldinn barnagirnd.

Já breytti engu

Héraðsdómur Reykjaness mat það svo að faðirinn hefði með freklegum og miskunnarlausum hætti hagnýtt sér yfirburðastöðu sem faðir, gert á meðan dóttir hans var fjarri heimili sínu og á tímabili þegar stúlkan var í einkar viðkvæmri stöðu. Hún hafi verið reiðubúin að ganga eins langt og þyrfti til að viðhalda nýjum föðurtengslum og gera ekkert sem valdið gæti því að faðir hennar hætti að tala við hana.

Framferði föðurins hafi falið í sér, til viðbótar við kynferðisofbeldi, andlegt ofbeldi, ólögmæta nauðung og á köflum hótanir.

Þótti dóminum fjarstæðukennt að virða orð, látbragð eða annað í fari stúlkunnar sem frjálsan vilja eða samþykki fyrir því sem faðir hennar gerði við hana í endurteknum kynferðisathöfnum. Breyti þar engu þó stúlkan hafi sagt já við slíku sifjaspellssambandi föður og barns. Faðirinn hafi gert sér grein fyrir því að hann væri haldinn barnagirnd.

Brot föður hafi verið svívirðileg, framin á sérstaklega meiðandi hátt, staðið yfir í langan tíma og falið í sér freklega misnotkun yfirburðastöðu hans gagnvart dóttur sinni. Var hann dæmdur í átta ára fangelsi og til að greiða dóttur sinni sex milljónir króna í miskabætur.


Tengdar fréttir

Á­kærður fyrir að nauðga dóttur sinni í­trekað

Karlmaður á suðvesturhorni landsins hefur verið ákærður fyrir nauðgun, sifjaspell og stórfellt brot í nánu sambandi gegn dóttur sinni. Honum er gefið að sök að hafa nauðgað stúlkunni, sem þá var fimmtán ára, ítrekað yfir hálfs árs tímabil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×