Atvinnulíf

Z kynslóðin byrjuð að breyta öllu: Sleppa háskólanámi og eru meðvituð um úreldingu starfa

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Þau yngstu í Z kynslóðinni eru aðeins 11 ára og því enn nokkuð langt í að Z kynslóðin taki við sem ríkjandi stjórnendahópur á vinnumarkaði. En vísbendingarnar eru þó strax að koma fram um að þetta sé kynslóðin sem muni breyta öllu.
Þau yngstu í Z kynslóðinni eru aðeins 11 ára og því enn nokkuð langt í að Z kynslóðin taki við sem ríkjandi stjórnendahópur á vinnumarkaði. En vísbendingarnar eru þó strax að koma fram um að þetta sé kynslóðin sem muni breyta öllu. Vísir/Getty

Z kynslóðin er kynslóðin sem sögð er vera sú sem mun breyta öllu. Þetta er unga fólki sem er fætt á tímabilinu 1995-2012, þekkir ekkert annað en internetið og samfélagsmiðla og sér til dæmis ekki fyrir sér hvernig háskólanám í dag á að nýtast þeim á vinnumarkaði næstu áratugi. 

Þar sem Z kynslóðin er enn svo ung, þarf að hafa það í huga að hún er ekki enn farin að taka við sem ríkjandi stjórnendahópur.

En þetta er þó kynslóð sem er nú þegar að sýna skýr merki um nýja nálgun og breytt viðhorf til núverandi kerfa, til dæmis til háskólanáms.

Nokkuð mikið er fjallað um þetta í erlendum miðlum og bendir Business Insider á að árið 2022 voru skráningar nýnema í háskóla í Bandaríkjunum, fjórum milljónum færri nemendur en tíu árum áður.

Nú gætu sumir hugsað; Tja, .... þetta á nú ekki við um Ísland enda eru námsgjöld hér ekki eins dýr og þar.

En rýnum betur í málin.

Samkvæmt könnun sem Fastcompany fjallar um nýlega, telja 60% Z kynslóðarinnar að störf sem eru til í dag, verði ekki til í óbreyttri mynd eftir tuttugu til þrjátíu ár.

Þá eru vísbendingar um að Z kynslóðin horfi frekar á aðra valkosti til náms; styttri og verklegri. 

Eins eru merki um að Z kynslóðin ætli sér ekki að steypa sér í sömu skuldaklafana og þau hafa fylgst með hjá foreldrum sínum; hvorki vegna námslána né fasteignakaupa.

Á sama tíma og þetta er að gerast, hafa ýmiss stórfyrirtæki sem eru þekkt og vinsæl sem vinnustaðir, Apple og Google þar á meðal, tekið út þá kröfu í ráðningum að viðkomandi aðili þurfi að hafa háskólagráðu. 

Um þetta skrifaði Atvinnulífið meðal annars árið 2020.

Ryan Jenkins, einn þekktasti fyrirlesari í heimi og rithöfundur um kynslóðamismun á vinnumarkaði nefnir líka áhugavert atriði í grein sem hann birti til rökstuðnings um það hvers vegna Z kynslóðin mun í síauknum mæli færast frá fjögurra ára háskólanámi.

Jenkins segir skýringuna ekki aðeins þá að Z kynslóðin ætli sér ekki að steypa sér í skuldir heldur sé þetta kynslóð sem horfi jafnframt til hækkandi lífaldurs.

Því nú þegar er vitað að meðalaldur Z kynslóðarinnar verður yfir 100 ár og þær kenningar eru meira að segja á lofti að sú manneskja sem fyrst verður til að ná 150 ára aldrinum, sé nú þegar fædd.

Viðhorf unga fólksins sé því einfaldlega þetta:

Hvernig getur háskólanám sem ég vel í dag nýst mér næstu 100 árin þegar vitað er að meirihluti starfa í heiminum mun breytast á næstu 20-30 árum?

Á vinnumarkaði í dag eru fjórar kynslóðir, en þær eru:

  • Baby Boomers er fólk sem fætt er á tímabilinu 1946 til 1964.
  • Kynslóð X er fólk fætt tímabilið 1965-1979.
  • Aldamótakynslóðin er fædd 1980 til ársins 1994.
  • Z kynslóðin er fólk sem fætt er 1995-2012.

Tengdar fréttir

24 ára milljónamæringur: Með eitt par af hnífapörum, einn disk og örbylgjuofn

„Ég var með einn gaffal, einn hníf, einn disk og örbylgjuofn. Ég vaskaði upp þegar að ég fór í sturtu í áhaldageymslunni í kjallaranum,“ segir Eyþór Máni Steinarsson framkvæmdastjóri og einn af eigendum Hopp rafhlaupahjólaleigunnar þegar hann rifjar upp fyrstu misserin sín í Reykjavík. Þá rétt að verða 16 ára, á leigumarkaði og í skóla.

Kulnun eftir Covid áberandi hjá 18-24 ára og sölu- og markaðsfólki

„Það sem gerir niðurstöðurnar fyrir 18 til 24 ára sláandi er hversu mikil breyting er á milli ára. Kulnun hjá þessum aldurshópi mælist 6 til 7% fyrir og í Covid en eykst hratt og mælist 17% eftir Covid. Sú starfsgrein þar sem kulnun mælist líka mjög há er til dæmis hjá sölu- og markaðsfólki,“ segir Trausti Heiðar Haraldsson framkvæmdastjóri Prósent.

Nýtt trend: Í tísku að vinna ekki umfram það sem greitt er fyri

„Quiet quitting“ er orðatiltæki á ensku sem um þessar mundir er sífellt oftar að dúkka upp í umræðunni erlendis. Það sem „quiet quitting“ þýðir snýst samt ekkert um að við séum að hætta á einhvern þögulan hátt í vinnunni okkar.

Fjórar kynslóðir á sömu vinnustöðum: Mikilvægt að þjálfa næstu kynslóð leiðtoga

„Eitt af því sem stendur upp úr í íslensku atvinnulífi í augnablikinu er að í fyrsta skipti erum við með fjórar ólíkar kynslóðir að vinna saman. Þetta eru þá kynslóðirnar sem eru Z kynslóðin, aldamótakynslóðin, X kynslóðin og sú sem er að jafnaði kölluð Baby boomers kynslóðin,“ segir Guðrún Högnadóttir framkvæmdastjóri Franklin Covey.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×