Skoðun

Víða leynast ger­semar í geymslum

Eyjólfur Pálsson skrifar

Við Íslendingar höfum löngum þótt nýjungagjarnir og á stundum jafnvel fram úr hófi. Það hefur til dæmis átt við þegar kemur að innanhússhönnun og húsbúnaði. Þá hefur öllu verið hent út og byrjað upp á nýtt, hvort sem um er að ræða fyrirtæki, stofnanir eða heimili.

Þessi nýjungagirni er sem betur fer á undanhaldi og fólk gerir sér æ betur grein fyrir mikilvægi vandaðrar hönnunar og sjálfbærni. Það á ekki bara við um kaup á vönduðum vörum sem endast vel heldur ekki síður um að nýta betur eldri húsmuni sem fyrirfinnast. Það leynast víða gersemar í geymslum!

Sjálfbærni og virðing

Loftslagsváin er stóra áskorun samtímans og við þurfum öll að huga að sjálfbærni. Framleiðslu á nýjum húsgögnum fylgir drjúgt kolefnisspor en með því að nýta eldri húsmuni drögum við úr eftirspurn eftir nýjum efnum, verndum náttúruauðlindir og drögum úr kolefnisspori, bæði þegar kemur að framleiðslu og flutningum.

Það er einnig mikilvægt að varðveita og heiðra menningu okkar og við eigum að bera virðingu fyrir fallegri hönnun og vönduðu handverki. Það er góð leið til að heiðra og halda tengslum við menningarsöguna að nýta eldri húsmuni sem margir hverjir hafa mikla sögu að geyma. Vönduð og vel hönnuð húsgögn eru gulls ígildi og mikilvægt að bera virðingu fyrir þeim og helst að nýta.

Hagkvæmni til framtíðar

Hagkvæmni er af hinu góða og vert er að hafa í huga að ódýrasta varan er ekki alltaf ódýrust þegar gæði og líftími vöru eru tekin með í reikninginn. Rammasamningar eru til þess fallnir að hvetja opinberar stofnanir til að velja ódýrasta tilboðið þegar kemur að innréttingum. Léleg og illa smíðuð húsgögn geta því orðið fyrir valinu og afleiðingin sú að endurnýja þarf flest húsgögnin innan örfárra ára. Ég veit því miður um nokkur slík tilvik.

Við verðum að gera kröfu um gæði og lágmarks líftíma og huga að hagkvæmni til framtíðar.

Alþingi og Landsbanki til fyrirmyndar

Að innrétta opinberar byggingar getur verið kostnaðarsamt. Það getur því verið afar hagkvæmt að velja að nýta vandaða eldri muni auk þess sem það styður við iðnað og handverk í landinu, ef þeir þarfnast lagfæringa. Það gladdi hjarta mitt að frétta af tveimur nýlegum og umfangsmiklum verkefnum þar sem ráðdeild og virðing fyrir sígildri og vandaðri hönnun var höfð að leiðarljósi. Við val á húsbúnaði fyrir nýbyggingu Alþingis var byrjað á að líta í geymslur og þar fundust 160 vel smíðaðir og góðir íslenskir stólar. Nú stendur yfir vinna við að endurbólstra þá og munu þeir eflaust eiga gott framhaldslíf! Hið sama var upp á teningnum þegar kom að innréttingum í nýjum höfuðstöðvum Landsbankans. Þar var einnig hugað að sjálfbærni og klassískri hönnun og gæðahúsgögn og eldri hönnunarmunir frá aflögðum útibúum bankans nýttir til að prýða nýja húsnæðið.

Látum þessi tvö ánægjulegu dæmi verða okkur hvatning til að skoða hvað leynist í geymslum, hvort sem það er heima við eða á vinnustað, og endurnýta eða gera upp vandaðar hönnunarvörur í stað þess að kaupa nýtt, ef þess er nokkur kostur.

Auk þess að vera hagkvæmir og sjálfbærir, skapa eldri gripir oft einstök og skemmtileg tækifæri í hönnun og samsetningu. Það eykur virðingu fyrir hönnun og vönduðu handverki, og tryggir varðveislu menningarminja.

Höfundur er stofnandi Epal.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×