Innlent

Hand­tekin fyrir utan heimili sitt á ADHD lyfjum

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Valdimar og Hanna María eru sársvekkt út í lögregluna eftir atburðina í fyrrakvöld.
Valdimar og Hanna María eru sársvekkt út í lögregluna eftir atburðina í fyrrakvöld. Vísir/Arnar

Hjónin Valdimar og Hanna María Rand­rup, í­búar í Hvera­gerði, voru hand­tekin í fyrra­kvöld þar sem am­feta­mín fannst í blóði þeirra vegna ADHD lyfsins Elvan­se sem þau eru á. Fjór­tán ára sonur þeirra varð eftir heima. For­maður ADHD sam­takanna segir málið það ljótasta sem hann hafi heyrt um, þar beri inn­viða­ráð­herra og dóms­mála­ráð­herra á­byrgð. Hjónin sögðu sögu sína í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

„Lög­reglan hand­tekur mig fyrir framan heimili mitt fyrir fíkni­efna­akstur og segir að ég sé í annar­legu á­standi og fer með mig á lög­reglu­stöðina. Á­stæðan? Ég tók ADHD lyfin mín,“ sagði Valdimar sem lýsti kvöldinu í heild sinni.

Þau Hanna lýsa því hvernig Hanna María hafi verið að láta renna í bað á heimili þeirra og hvernig Valdimar hafi á­kveðið að skjótast út í búð að kaupa mjólk. Lög­reglan hafi stoppað hann á leið heim vegna snarprar beygju sem hann tók inn götuna þar sem þau búa.

„Það þýddi ekkert fyrir mig að vera kurteis og koma lög­reglu­þjóninum í skilning um það að ég væri venju­legur maður sem væri með lyf­seðil inni á Heilsu­veru sem ég sýndi þeim þar sem kom fram heiti lyfsins og hvernig lyfið er skammtað, sem er ein tafla að morgni og ein tafla seinni partinn.“

Valdimar segir ekkert hafa gengið að koma vitinu fyrir lög­reglu­mennina um að hann væri ekki í annar­legu á­standi. Hann hafi eytt deginum í starfi sínu sem málari við að mála lög­reglu­stöðina hjá lögreglunni á Vesturlandi á Akra­nesi. Þar hafi hann átt yndis­leg sam­skipti við lög­regluna en svo allt öðruvísi samskipti um kvöldið við kollega þeirra á Suðurlandi. Bæði lýsa hjónin því að þau hafi á­vallt borið mikið traust til lög­reglunnar.

„Ég var fluttur með blá blikkandi ljós í lög­reglu­bíl til Sel­foss og þegar ég spurði áður en við lögðum af stað hvort ég mætti tala við konuna mína var fyrsta svarið skýrt frá lög­reglunni: Nei. Ég væri í annar­legu á­standi og væri hand­tekinn.“

Tíu mínútum síðar hafi lög­reglu­mennirnir opnað gluggann á lög­reglu­bílnum um nokkra sentí­metra. Þá hafi Valdimar getað sagt Hönnu að hann hafi verið hand­tekinn vegna ADHD lyfjanna. Valdimar er hjart­veikur og því á blóð­þynningar­lyfjum. Hann var færður á lög­reglu­stöð þar sem gerðar voru til­raunir til að taka úr honum blóð­sýni.

„Eftir að ég var búinn að sitja and­stuttur vegna veikinda minna, blá­sak­laus maður sem hvorki drekkur á­fengi, dópar, né reykir var ég orðinn blóðugur á höndunum vegna sí­endur­tekinna til­rauna við að stinga mig og draga úr mér blóð og gólfið blóðugt vegna þess að ég er á blóð­þynningu, tókst mér að fá það í gegn eftir sí­endur­teknar beiðnir í um 45 mínútur að fá vatns­glas.“

Valdimar tók upp símann sinn á þessum tíma­punkti. Þar fékk hann þau skila­boð frá tengda­syni sínum að Hanna hefði líka verið hand­tekin.

„Ég fylltist þá enn meiri ótta og reyndi að spyrja lög­reglu­þjónana hvað væri um að vera. En þá var svarið sem ég fékk að síminn minn væri tekinn af mér og ég sagður vera í annar­legu á­standi og hand­tekinn og ég fengi ekki að hafa símann minn og að ég fengi ekkert að vita um konuna mína, hvers vegna hún væri líka orðin síma­laus og hand­tekin.“

Elti lög­reglu­bílinn

Hanna lýsir því í Bítinu hvernig hún hafi allt í einu tekið eftir bláum blikkandi ljósum lög­reglunnar í botn­langanum þar sem þau hjónin búa. Hún hafi hugsað með sér að ein­hver hafi kannski bakkað á Valdimar.

„Síðan fer ég að kíkja og kem labbandi út. Þá labbar lög­reglu­maður að mér og segir: Ert þú eigin­kona Valdimars? Ég segi já. Hann er að biðja um nef­tóbaks­hornið sitt. Ég bara: Nei, hann tekur bara í nefið þegar hann kemur inn. Þá segir hann: Nei hann þarf að koma með okkur niður á stöð. Ég segi: Ha? Nei, bíddu hvað? Hann segir: Ég má ekki til­kynna þér það, en hann er hand­tekinn. Ha?“

Hanna út­skýrir að hún sé hjúkrunar­fræðingur sem vinni á geð­sviði Land­spítalans. Hún hafi í ein­feldni sinni ætlað að sýna lög­reglu­mönnunum lyf­seðilinn eftir að hafa rætt við eigin­mann sinn í gegnum bíl­rúðu lög­reglu­bílsins. Valdimar hafi sagt henni að það þýddi ekkert og síðan hafi lög­reglan keyrt á brott með hann. Hanna hafi á­kveðið að skjótast á eftir lög­reglu­bílnum.

Hanna María byrjaði á því að banka á aðaldyr lögreglustöðvarinnar. Þar kom enginn til dyra.Vísir/Vilhelm

„Ég kveð strákinn okkar og keyri á eftir þeim á Sel­foss. Þegar ég kem fyrir utan lög­reglu­stöðina þá reyni ég að banka á aðal­dyrnar en enginn svarar, þannig að ég hringi í 1-1-2 og reyni að fá sam­band við lög­reglu­stöðina á Sel­fossi, en mér er sagt af starfs­manni Neyðar­línunnar hvort ég labbi ekki bara hringinn og fari hinu­megin við og banki þar. Sem ég geri.“

Þar hafi hún komist inn og út­skýrt fyrir lög­reglu­manni að maðurinn hennar hafi verið hand­tekinn. Hún skilji ekki alveg hvað sé í gangi og bað Hanna um að fá að tala við varð­stjórann. Lög­reglu­maðurinn kvaðst ekkert geta upp­lýst Hönnu um stöðuna, málið væri í rann­sókn.

„Ég segi: Bíddu fyrir­gefðu, ég skil þetta ekki alveg. Ég er sjálf á ADHD lyfjum, ég kom keyrandi hingað. Á ekki að hand­taka mig? Þá fer hann eitt­hvað að út­skýra fyrir mér sem heil­brigðis­starfs­manni að þetta sé þrí­hyrnings­skyld lyf og það sé þekkt að fólk sé að mis­nota þessi lyf. Ég segi við hann: Veistu ég ætla ekki í þennan sand­kassa­leik við þig. Þetta gengur ekki, ég er búinn að keyra hérna síðan 2015 yfir Hellis­heiðina í vinnu.“

Hanna segir lög­reglu­manninn þá hafa verið með skæting og spurt hana hvort hún hafi þá verið undir á­hrifum am­feta­míns. Hún hafi sagt honum að láta ekki svona, opnað Heilsu­veru og sýnt honum lyf­seðil sinn. Lög­reglu­maðurinn hafi sagt henni að koma sér af lóð lög­reglunnar og ýtt henni svo að hún hrasaði þar sem hún stóð á inni­skónum og nátt­buxunum.

„Síðan heyrir tengda­sonur minn í lög­fræðingi sem segir það að það sé verið að draga blóð úr manninum mínum og að síðan verði honum sleppt. Ég veit það, því ég hef áður unnið á HSU sem er þarna beint á móti, þá voru hinir grunuðu eða hvað sem þeir eru kallaðir, farið með það á bráða­mót­tökuna og þar var dregið blóðið. Þannig að ég settist undir stýri, spenni belti, gef stefnu­ljós og er að keyra á 20 kíló­metra hraða þegar það koma blá ljós blikkandi fyrir aftan mig.“

Hanna sagðist hafa útskýrt fyrir lögreglumanninum á Selfossi að hún hefði oft keyrt Hellisheiðina eftir að hafa tekið ADHD lyfin.Vísir

Hanna segir þar hafa verið á ferðinni sama lög­reglu­mann og hún hafi áður rætt við á lög­reglu­stöðinni. Hann hafi tjáð henni að þarna væri á ferðinni reglu­bundið eftir­lit. Hún hafi sýnt öku­skír­teinið sitt.

„Hann horfir á mig og segir: Hefurðu verið að neita vímu­efna? Ég segi nei. Það hef ég ekki verið að gera en þú veist hins vegar, af því að við vitum það bæði, að ég er á Elvan­se.“

Hún hafi þá verið beðin um að koma með þeim í lög­reglu­bílinn. Þar hafi hún verið látin blása, tekin stroka úr kinn og þá var Hanna spurð hvers vegna hún væri svona þvoglu­mælt? Sex mínútum síðar hafi henni verið til­kynnt að am­feta­mín hafi fundist í blóði hennar, henni var lesinn réttur sinn og henni sagt að hún væri hand­tekin.

Hjónin segjast ávallt hafa borið mikið traust til lögreglunnar. Vísir/Vilhelm

„Þau spyrja mig hvort ég ætli að leyfa þeim að færa bílinn okkar eða hvort við viljum láta draga hann. Ég segi að ég sé á raf­magns­bíl og að ég vilji helst ekki láta draga hann,“ segir Hanna.

„Ég tek upp símann, af því að ég segi:  Dóttir okkar er þarna í bílnum. Þá er bara sagt við mig mjög hvössum róm: Settu niður símann núna! Og ég er að reyna að út­skýra fyrir þeim í bílnum að af því að við keyrum þannig bíl, að bíl­lykillinn er síminn. Síðan eftir eitt­hvað þras rétti ég þeim símann en þá segi ég: Hvernig á ég eigin­lega að geta sýnt ykkur að ég sé á Elvan­se ef þið takið af mér símann og ég kemst ekki inn á Heilsu­veru?“

Hanna hafi þá verið látin bíða í bílnum á meðan Valdimar var fluttur annað, þar sem hinir grunuðu megi ekki mætast. Hanna segist þá hafa bent lög­reglu­fólkinu á að það væri barn á heimilinu, fjór­tán ára sonur þeirra sem hafi verið skilinn eftir heima. Lög­reglu­fólkið hafi ekki brugðist við þeirri á­bendingu en hjónin komu ekki aftur heim fyrr en seint um nóttu.

Traustið til lög­reglunnar farið

Bæði segjast hjónin á­vallt hafa treyst lög­reglunni. Þau hafi alið börn sín upp þannig að lög­reglan væri ekki grýla.

„Ég vil í­treka það að fullt af fólki sem ég þekki er í lög­reglunni. ég hef unnið á bráða­mót­tökunni Foss­vogi, bráða­mót­töku geð­sviðs og sem heil­brigðis­starfs­maður höfum við alltaf unnið og borið traust til lög­reglunnar,“ segir Hanna.

„Þetta er í fyrsta skiptið síðan að ég flutti austur í gær þar sem ég er hálf smeyk og er að horfa í bak­sýnis­spegilinn þegar ég er á leiðinni í vinnuna, af því að það getur ein­hver með ein­hverja geð­þótta­á­kvörðun á­kveðið það að ég sé í annar­legu á­standi.“

Segir ráð­herra bera á­byrgð

Vil­hjálmur Hjálmars­son, for­maður ADHD sam­takanna, segir í Bítinu að málið sé það ljótasta sem hann hafi heyrt um síðan um­ferðar­lögum var breytt árið 2019. Hann hafi heyrt margar ljótar sögur, sér­stak­lega þegar við­komi ADHD lyfjum eins og Attentín og Elvan­se sem vissu­lega inni­haldi am­feta­mína­f­leiðu.

„Vanda­málið hérna byggir á al­var­legri hand­vömm inn­viða­ráð­herra, Sigurðar Inga, að hafa fjórum árum seinna núna ekki enn­þá sett reglu­gerð. Án reglu­gerðar er engin leið­beining um hvernig eigi að fara eftir þessum lögum og engar undan­þágur.“

Vilhjálmur Hjálmarsson, formaður ADHD samtakanna segir ríkislögreglustjóra og þar með dómsmálaráðherra bera ábyrgð á hegðun lögreglumanna.Vísir/Vilhelm

Valdimar fékk vott­orð frá lækninum sínum vegna notkun lyfjanna eftir hand­tökuna í fyrra­kvöld. Vil­hjálmur segir lög­reglu nú neita að taka við slíku vott­orði og þar beri dóms­mála­ráð­herra á­byrgð.

„Ríkis­sak­sóknari sendi frá sér fyrir­mæli, form­leg fyrir­mæli til lög­reglu­manna, nr. 5/2020 - þetta er vorið 2020 - þess efnis að á meðan það væri ekki komin reglu­gerð þá yrðu þeir að fara eftir orðanna hljóðan, á strangastan máta. Am­feta­mín í þessu til­felli er þá bara túlkað sem fíkni­efni. Ef það finnst minnsta magn í blóði, þá ert þú bara sekur um að vera að neyta ó­lög­legra fíkni­efna.“

Vil­hjálmur segist hafa heyrt margar slíkar sögur. Svo virðist vera sem lög­reglan á Suður­landi gangi harðast fram í slíkum málum.

„Ég í­treka það að ég hef heyrt frá mörgum lög­reglu­mönnum í gegnum tíðina sem eru miður sín og það er iðul­lega fólk með meiri reynslu. Mér heyrist það vera frekar yngri lög­reglu­menn sem ganga svona hart fram og þessi lýsing hérna gengur út fyrir allan þjófa­bálk.“

Vilhjálmur segir ADHD samtökin nú vinna að lögfræðiáliti vegna laganna, sem opinberað verði á næstunni. Þar verði lagðar til breytingar á lögunum. Samtökin hafi áður sent ríkislögreglustjóra bréf vegna laganna.

„Svarið sem kom til baka var forkastanlegt. Það tók yfir tíu mánuði fyrir ríkislögreglustjóra að setja saman eitthvað bull. Vísa í dóma sem voru allt öðruvísi mál sem voru klárlega misnotkun. Þetta bara á ekki að sjást.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×