Vaxtahækkanir hafa allar tekið gildi hjá stóru bönkunum Atli Ísleifsson skrifar 5. september 2023 11:24 Jón Guðni Ómarsson er bankastjóri Íslandsbanka. Vísir/Vilhelm Vaxtahækkanir hjá Íslandsbanka vegna stýrivaxtahækkunar Seðlabankans í síðasta mánuði tóku gildi í gær og hafa vaxtahækkanir því tekið gildi hjá öllum stóru viðskiptabönkunum.
Íslandsbanki tilkynnti um yfirvofandi vaxtahækkanir í upphafi mánaðar, en áður höfðu bæði Arion banki og Landsbankinn tilkynnt um vaxtahækkanir. Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað í síðustu viku að hækka stýrivexti um 0,50 prósentustig. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, fóru því úr 8,75 prósentum í 9,25. Á vef Íslandsbanka segir að vextirnir hjá bankanum hafi breyst í gær, 4. september, en hjá Ergo þann 8. september næstkomandi. „Vaxtabreytingarnar eru eftirfarandi: Vextir á óverðtryggðum innlánsreikningum hækka um 0,50 prósentustig. Vextir á verðtryggðum innlánsreikningum einstaklinga og fyrirtækja hækka um allt að 0,50 prósentustig. Vextir á almennum veltureikningum hækka um 0,35 prósentustig. Breytilegir vextir óverðtryggðra húsnæðislána hækka um 0,50 prósentustig. Fastir vextir óverðtryggðra húsnæðislána til 3 ára hækka um 0,40 prósentustig. Breytilegir vextir verðtryggðra húsnæðislána hækka um 0,50 prósentustig. Fastir vextir verðtryggðra húsnæðislána til 5 ára hækka um 0,50 prósentustig. Breytilegir óverðtryggðir kjörvextir hækka um 0,50 prósentustig. Breytilegir verðtryggðir kjörvextir hækka um 0,30 prósentustig. Breytilegir óverðtryggðir kjörvextir Ergo og vextir bílalána og bílasamninga hækka um 0,50 prósentustig. Yfirdráttarvextir einstaklinga og fyrirtækja hækka um 0,50 prósentustig. Breytingar á lánum sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka þó gildi í samræmi við skilmála þeirra og tilkynningar þar að lútandi,“ segir á vef bankans.
Íslenskir bankar Íslandsbanki Fjármál heimilisins Tengdar fréttir Landsbankinn hækkar vextina Landsbankinn tilkynnti síðdegis í gær um hækkun á vöxtum hjá bankanum í kjölfar stýrivaxtahækkunar Seðlabankans og tekur ný vaxtatafla gildi í dag. Arion banki tilkynnti sömuleiðis um vaxtahækkanir í gær. 1. september 2023 07:29 Landsbankinn hækkar vextina Landsbankinn tilkynnti síðdegis í gær um hækkun á vöxtum hjá bankanum í kjölfar stýrivaxtahækkunar Seðlabankans og tekur ný vaxtatafla gildi í dag. Arion banki tilkynnti sömuleiðis um vaxtahækkanir í gær. 1. september 2023 07:29 Fyrstur stóru viðskiptabankanna til að tilkynna um vaxtahækkun Arion banki hefur tilkynnt um hækkun vaxta á inn- og útlánum hjá bankanum í kjölfar stýrivaxtaákvörðunar Seðlabankans í síðustu viku. Breytingarnar taka gildi í dag. 31. ágúst 2023 08:59 Mest lesið Ný verslun nærri þúsund fermetrum stærri en sú gamla Neytendur Melabúðarbræður með hálfan milljarð í fyrra Viðskipti innlent Framkvæmdastjóri Smáríkisins ákærður Viðskipti innlent Pósturinn hættir að senda til Bandaríkjanna: Geti ekki sett fimmtán prósenta toll á allt Viðskipti innlent Skattakóngurinn flytur úr landi Viðskipti innlent Samherjahjónin fyrrverandi langtekjuhæst Viðskipti innlent Hvað þurfum við að eiga mikið til að geta hætt að vinna? Viðskipti innlent Tuttugu tonn af íþróttanammi á sextíu dögum Neytendur Keyra á orkudrykkjamarkaðinn Viðskipti innlent „Ekki bara steypa heldur fólk og framtíð“ Samstarf Fleiri fréttir Pósturinn hættir að senda til Bandaríkjanna: Geti ekki sett fimmtán prósenta toll á allt Melabúðarbræður með hálfan milljarð í fyrra Framkvæmdastjóri Smáríkisins ákærður Pósturinn hættir að senda til Bandaríkjanna á mánudaginn Samherjahjónin fyrrverandi langtekjuhæst Kannast ekki við „lífróður“ Heimildarinnar sem fækkar útgáfudögum Skattakóngurinn flytur úr landi Setja tvo milljarða til í fiskeldið sem tapar hundruðum milljóna „Framboð á markaði er ekki það sem neytendur vilja kaupa“ Móðurfélag útgefanda Moggans tapaði hundruðum milljóna Segir háa stýrivexti bitna á ákveðnum hópi og boðar aðhald í fjárlagafrumvarpi Keyra á orkudrykkjamarkaðinn Kaupa Gompute „Ég bið almenning að hafa þolinmæði með okkur“ Ósáttir með ákvörðun peningastefnunefndar Muni ekki hika við að hækka vexti Sektað fyrir að auglýsa of mikið fyrir Áramótaskaupið Kristján og Leó kaupa fyrrverandi höfuðstöðvar Landsvirkjunar Endurbættur Kaffivagn opnar aftur í dag Gleðiefni að fjármálaráðherri tali um aðhald í ríkisfjármálum Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðunina Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Ráðin til Fossa fjárfestingarbanka Birta nýja ákvörðun um stýrivexti í dag Hvað þurfum við að eiga mikið til að geta hætt að vinna? Herra Hnetusmjör tekjuhæstur í Iceguys Sante fer í hart við Heinemann Davíð trónir enn og aftur á toppnum Runólfur á toppi tekjulistans yfir launahæstu embættismennina og forstjórana Ólafur Ragnar með rúma milljón meira en næsti maður Sjá meira
Landsbankinn hækkar vextina Landsbankinn tilkynnti síðdegis í gær um hækkun á vöxtum hjá bankanum í kjölfar stýrivaxtahækkunar Seðlabankans og tekur ný vaxtatafla gildi í dag. Arion banki tilkynnti sömuleiðis um vaxtahækkanir í gær. 1. september 2023 07:29
Landsbankinn hækkar vextina Landsbankinn tilkynnti síðdegis í gær um hækkun á vöxtum hjá bankanum í kjölfar stýrivaxtahækkunar Seðlabankans og tekur ný vaxtatafla gildi í dag. Arion banki tilkynnti sömuleiðis um vaxtahækkanir í gær. 1. september 2023 07:29
Fyrstur stóru viðskiptabankanna til að tilkynna um vaxtahækkun Arion banki hefur tilkynnt um hækkun vaxta á inn- og útlánum hjá bankanum í kjölfar stýrivaxtaákvörðunar Seðlabankans í síðustu viku. Breytingarnar taka gildi í dag. 31. ágúst 2023 08:59
Pósturinn hættir að senda til Bandaríkjanna: Geti ekki sett fimmtán prósenta toll á allt Viðskipti innlent
Pósturinn hættir að senda til Bandaríkjanna: Geti ekki sett fimmtán prósenta toll á allt Viðskipti innlent