Viðskipti innlent

Fyrstur stóru við­skipta­bankanna til að til­kynna um vaxta­hækkun

Atli Ísleifsson skrifar
Benedikt Gíslason  er bankastjóri Arion banka.
Benedikt Gíslason er bankastjóri Arion banka. Vísir/Vilhelm

Arion banki hefur tilkynnt um hækkun vaxta á inn- og útlánum hjá bankanum í kjölfar stýrivaxtaákvörðunar Seðlabankans í síðustu viku. Breytingarnar taka gildi í dag.

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað í síðustu viku að hækka stýrivexti um 0,50 prósentustig. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, fóru því úr 8,75 prósentum í 9,25.

Í tilkynningu á vef Arion banka segir að breytilegir vextir þegar veittra lána til einstaklinga hækki 30 dögum eftir tilkynningu. Vextir innlána taka hins vegar breytingum samdægurs og bera öll ný útlán nýju vextina.

„Breytingarnar eru eftirfarandi:

Íbúðalán

  • Óverðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir hækka um 0,50 prósentustig og verða 10,89%
  • Óverðtryggðir fastir 3 ára íbúðalánavextir hækka um 0,50 prósentustig og verða 9,80%
  • Verðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir hækka um 0,50 prósentustig og verða 3,29%
  • Verðtryggðir fastir íbúðalánavextir hækka um 0,30 prósentustig og verða 3,24%

Kjörvextir

  • Almennir óverðtryggðir kjörvextir hækka um 0,50 prósentustig
  • Almennir verðtryggðir kjörvextir hækka um 0,50 prósentustig

Yfirdráttur og greiðsludreifing kreditkorta

  • Yfirdráttarvextir og vextir greiðsludreifinga hækka um 0,50 prósentustig

Bílalán

  • Kjörvextir bílalána hækka um 0,50 prósentustig.

Innlán

  • Breytilegir óverðtryggðir vextir veltureikninga hækka um allt að 0,25 prósentustig og sparnaðarreikninga um allt að 0,60 prósentustig
  • Vextir verðtryggðra sparnaðarreikninga hækka um allt að 0,60 prósentustig

Vaxtabreytingar útlána taka mið af fjármögnunarkostnaði bankans á hverjum tíma en einnig af öðrum þáttum, m.a. útlánaáhættu. Fjármögnunarkostnaður bankans fylgir að hluta til stýrivöxtum Seðlabankans en einnig hafa aðrar fjármögnunarleiðir umtalsverð áhrif, svo sem innlán viðskiptavina, markaðsfjármögnun, erlend skuldabréfaútgáfa og eiginfjárgerningar.

Breytingar á vöxtum lána sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka gildi í samræmi við skilmála lánanna og tilkynningar um vaxtabreytingar,“ segir í tilkynningunni.


Tengdar fréttir

Vaktin: Seðla­bankinn hækkar stýri­vexti enn á ný

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,50 prósentustig. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, fara því úr 8,75 prósentum í 9,25.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×