Handbolti

Magdeburg með fullt hús stiga eftir sigur í Íslendingaslag

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Ómar Ingi Magnússon skoraði sex mörk fyrir Magdeburg í dag.
Ómar Ingi Magnússon skoraði sex mörk fyrir Magdeburg í dag. Gregor Fischer/picture alliance via Getty Images

Ómar Ingi Magnússon, Janus Daði Smárason og félagar þeirra í Magdeburg unnu góðan tveggja marka sigur er liðið tók á móti Teiti Erni Einarssyni og félögum hans í Flensburg.

Þýska úrvalsdeildin í handbolta er farin af stað og mættust Magdeburg og Flensburg í annarri umferð deildarinnar í dag. 

Jafnræði ríkti á með liðunum, en heimamenn í Magdeburg virtust þó skrefi framar stærstan hluta leiksins. Liðið náði mest þriggja marka forskoti í fyrri hálfleik og sá var einmitt munurinn þegar flautað var til hálfleiks, staðan 16-13.

Magdeburg byrjaði seinni hálfleikinn af miklum krafti og náði mest sjö marka forskoti í stöðunni 22-15. Gestirnir í Flensburg minnkuðu muninn hægt og rólega eftir það, en náðu aldrei að ógna forskoti Magdeburg að viti og niðurstaðan varð tveggja marka sigur heimamanna, 31-29.

Ómar Ingi Magnússon skoraði sex mörk fyrir Magdeburg í dag, öll úr vítum, og Janus Daði Smárason skoraði tvö og lagði upp önnur tvö. Teitur Örn Einarsson komst ekki á blað fyrir Flensburg.

Magdeburg er því enn með fullt hús stig eftir tvo leiki, en þetta var fyrsta tap Flensburg á tímabilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×