Handbolti

Elvar Örn í liði umferðarinnar í Þýskalandi

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Elvar Örn Jónsson fór á kostum með MT Melsungen í fyrstu umferð þýsku deildarinnar.
Elvar Örn Jónsson fór á kostum með MT Melsungen í fyrstu umferð þýsku deildarinnar. Marvin Ibo Guengoer - GES Sportfoto/Getty Images

Selfyssingurinn Elvar Örn Jónsson er í liði umferðarinnar í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta eftir öruggan sigur MT Melsungen gegn Göppingen í fyrstu umferð tímabilsins.

Elvar fór algjörlega á kostum í tíu marka sigri Melsungen, 29-19. Hann skoraði átta mörk fyrir heimamenn í leiknum og gaf þar að auki sex stoðsendingar. Liðsfélagar hans hjá Melsungen, Timo Kastening og Nebojsa Simic, eru einnig í liði vikunnar.

Kastening skoraði einnig átta mörk í leiknum og Simic gerði sér lítið fyrir og varði 21 skot og var með rúmlega 50 prósent markvörslu.

Elvar er eini Íslendingurinn sem er í liði vikunnar að þessu sinni, en búast má við því að fleiri fylgi þegar líður á tímabilið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×