Handbolti

„Kominn með nóg af því að vera meiddur“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ómar Ingi Magnússon hefur leikið með Magdeburg frá 2020.
Ómar Ingi Magnússon hefur leikið með Magdeburg frá 2020. getty/Gregor Fischer

Ómar Ingi Magnússon, Íþróttamaður ársins 2021 og 2022, sneri aftur á handboltavöllinn í síðustu viku eftir sjö mánaða fjarveru vegna meiðsla. Hann fer sér í engu óðslega í endurkomunni en segir að það hafi tekið á að fylgjast með seinni hluta síðasta tímabils af hliðarlínunni.

Ómar Ingi skoraði eitt mark þegar Magdeburg rústaði Wetzlar, 15-31, í 1. umferð þýsku úrvalsdeildarinnar á föstudaginn. Það var hans fyrsti leikur síðan Ísland vann Grænhöfðaeyjar á HM 18. janúar. Síðan þá hefur Selfyssingurinn verið frá vegna meiðsla á hæl og gekkst undir aðgerð vegna þeirra í byrjun febrúar.

„Tilfinningin var frábær. Ég var kominn með nóg af því að vera meiddur. Líkaminn fékk góða pásu og ég er glaður með að vera kominn aftur,“ sagði Ómar Ingi í samtali við Vísi í gær. Hann segist enn eiga töluvert í land til að ná fyrri styrk.

„Ég þarf bara að æfa. Mig vantar aðeins kraft í fæturna og styrkja löppina í kringum sinina. Ég er enn smá aumur ennþá en það er hluti af þessu. Þetta kemur með æfingu og meiri tíma inni á vellinum.“

Fer hægt í sakirnar

Ómar Ingi er til þess að gera nýbyrjaður að æfa með Magdeburg og spilaði aðeins í um tíu mínútur í leiknum gegn Wetzlar á föstudaginn. Hann ítrekar að hann ætli að fara rólega af stað.

„Þetta er allt gert mjög markvisst og það mun taka mig einhvern tíma fyrir mig að verða hundrað prósent aftur. Ég þarf bara að æfa og æfa almennilega.“

Að sögn Ómars Inga gekk endurhæfingin vel. „Ég fékk að vita að þetta væru svona 5-8 mánuðir og núna eru komnir sjö mánuðir. Það er misjafnt hversu langan tíma þetta tekur. Það var hundfúlt að geta ekki spilað og verið með,“ sagði Ómar Ingi.

Ætlar ekki að vera aftur í stúkunni

Sem fyrr sagði fylgdist Selfyssingurinn með seinni hluta síðasta tímabils af hliðarlínunni. Hann segir að það hafi verið sérstaklega erfitt að horfa á úrslitahelgi Meistaradeildar Evrópu úr stúkunni. Magdeburg, leiddir áfram af Gísla Þorgeiri Kristjánssyni, stóð þar uppi sem sigurvegari.

„Það var mjög leiðinlegt að þurfa að horfa á úrslitahelgina og það er eitthvað sem mig langar ekki að gera aftur. En ég var mjög glaður fyrir hönd liðsins, hvernig þeir spiluðu og hvað þeir afrekuðu. Vonandi verð ég með næst,“ sagði Ómar Ingi.

Leikmenn Magdeburg fagna Evrópumeistaratitlinum.getty/Ronny Hartmann

Auk þess að verða Evrópumeistari varð Magdeburg heimsmeistari félagsliða á síðasta tímabili og endaði í 2. sæti í þýsku úrvalsdeildinni og þýsku bikarkeppninni. Liðið setur áfram stefnuna á að vinna alla þá titla sem það keppir um.

„Það er akkúrat það sem við ætlum að gera, reyna við alla titla og bæta okkur. Við erum með hörkulið og búnir að fá nokkra nýja og flotta leikmenn. Gísli er reyndar úr leik í einhvern tíma en við erum helvíti öflugir. En við þurfum að sýna það í hverjum leik. Það er kúnstin í þessu,“ sagði Ómar Ingi.

Góður liðsstyrkur

Eftir að hafa spilað stöðu hægri skyttu hjá Magdeburg með Hollendingnum Kay Smits fékk Ómar Ingi nýjan félaga í sumar, Svíann Albin Lagergren. Hann ber honum vel söguna.

„Hann er mjög flottur, mjög öflugur, traustur í vörn og sókn. Hann á eftir að hjálpa okkur,“ sagði Ómar Ingi.

Ómar Ingi fer sér engu óðslega í endurkomunni.getty/Gregor Fischer

Þeir Gísli hafa myndað eitt besta tvíeyki handboltans undanfarin ár en sá síðarnefndi missir af fyrri hluta tímabilsins vegna meiðsla sem hann varð fyrir í úrslitahelgi Meistaradeildarinnar. Til að fylla skarð Gísla fékk Magdeburg Janus Daða Smárason frá Kolstad í Noregi.

„Hann hefur komið vel inn í þetta. Ég er spenntur að sjá hann. Hann passar vel inn í okkar leikstíl, fer mikið maður á mann og það er mikið tempó í honum. Ég held hann verði glæsilegur með okkur. Hann er flottur leikmaður og mjög gott að spila með honum,“ sagði Ómar Ingi að endingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×