Viðskipti innlent

Ráðinn fjár­festingar­stjóri hjá VEX

Atli Ísleifsson skrifar
Davíð Stefánsson.
Davíð Stefánsson. Elva Þrastardóttir

Davíð Stefánsson hefur verið ráðinn til sjóðstýringarfélagisins VEX þar sem hann mun starfa sem fjárfestingarstjóri í framtaksfjárfestingum.

Í tilkynningu segir að Davíð hafi starfað á fjármálamarkaði í yfir tólf ár, en síðustu sex árin hafi hann gegnt stöðu sjóðstjóra blandaðra og erlendra hlutabréfasjóða hjá Akta sjóðum.

„Þar áður starfaði hann hjá ráðgjafarfyrirtækinu PJT Partners í London, fyrirtækjaráðgjöf Straums fjárfestingabanka og í fyrirtækjaráðgjöf og greiningardeild Arion banka. Davíð hefur lokið B.Sc. námi í hagfræði frá Háskóla Íslands, M.Sc. í alþjóðafjármálum frá HEC Paris og prófi í verðbréfaviðskiptum.

VEX rekur framtaksjóði sem fjárfesta í óskráðum fyrirtækjum, sem eru að sækja nýtt hlutafé til vaxtar, auk stöndugra félaga þar sem tækifæri eru til umbóta og aukinnar virðissköpunar. Sjóðir VEX hafa fjárfest í fyrirtækjunum AGR, Annata, Opnum kerfum, Icelandic Provisions auk þess sem kaup í Öryggismiðstöðinni eru nú í ferli,“ segir í tilkynningunni.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×