Innlent

„Til skammar að þetta mæti fólki þegar það kemur út úr flug­stöðinni“

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Það mætti segja að móttökurnar hafi verið skítugar fremur en hlýjar sem mættu farþegum þegar þessar myndir voru teknar við Leifsstöð. Þær eru teknar á mismunandi tímum en í báðum tilfellum er umhirðan ansi slæm.
Það mætti segja að móttökurnar hafi verið skítugar fremur en hlýjar sem mættu farþegum þegar þessar myndir voru teknar við Leifsstöð. Þær eru teknar á mismunandi tímum en í báðum tilfellum er umhirðan ansi slæm. Aðsent/Facebook

Rútubílstjórar segja umhirðu við Leifsstöð ekki nógu góða. Það sé of sjaldan þrifið og það vanti aukið aðgengi að ruslatunnum. Upplýsingafulltrúi Isavia segir að þrif á vellinum miðist við fjölda farþega hverju sinni en fyrirtækið taki öllum ábendingum alvarlega.

Björn Briem, rútubílstjóri hjá Kynnisferðum, vakti í morgun athygli á sóðalegri umgengni við Leifsstöð með ljósmyndum og færslu á Facebook-síðunni Bakland ferðaþjónustunnar. 

Þar skrifaði hann „Nú má Isavia fara að girða sig í brók, rusl og sóðaskapur blasir allsstaðar við ferðamönnum sem koma inn í landið auk þess sem þeir kvörtuðu í morgun undan stífluðum klósettum og tilheyrandi ólykt í kjallaranum. Þetta er bara lítið dæmi um það sem ber fyrir augu.“

Við ruslatunnurnar fyrir utan Leifsstöð er mikið af stubbum og ýmiss konar rusli. Þá hafa kaffiþyrstir haldið að stubbahús í biðstöðinni fyrir utan væri ruslatunna.Facebook

Vísir hafði samband við Björn til að ræða við hann um myndirnar sem hann sagðist hafa tekið á föstudaginn.

„Ég var að koma úr fríi núna en þetta er búið að vera svona alla helgina. Það er rosalega oft sem draslið fær að safnast upp. Það eru tvær litlar ruslatunnur þarna fyrir utan og einn ruslagámur. En það er engin aðstaða til að losa rusl neins staðar,“ sagði Björn um sóðaskapinn við Leifsstöð.

Við ruslatunnurnar er innkaupakarfa full af dósum og flöskum.Facebook

„Það er til skammar að þetta skuli vera það sem mæti fólki þegar það kemur út úr flugstöðinni. Ekki beinlínis hvatning til fólks að ganga vel um. Bara skítugt,“ bætti hann við. 

„Það þarf að passa upp á þetta en það er eins og eftir Covid sé enginn metnaður til að hafa hlutina í lagi,“ sagði Björn.

Þá benti hann á kollega sinn, Þóri Jónsson, sem hefur ítrekað reynt að vekja athygli á sóðalegri umhirðu á vellinum.

Leiðinlegt að ferðamenn þurfi að vaða í gegnum rusl

Þórir Jónsson er íbúi á Suðurnesjum og kollegi Björns hjá Kynnisferðum. Hann er mikið upp á flugvellinum og segist ítrekað hafa bent á sóðalega umgengni við völlinn en það sé ekkert brugðist við því.

Þórir er mikið uppi á Keflavíkurflugvelli vegna vinnu og segir að það þurfi standa betur að umhirðu í kringum völlinn.Facebook

„Það er eins og það sé þrifið illa um helgar, einhver sparnaður í gangi. Þetta er leiðinlegt fyrir okkur, fólk vaðandi í gegnum rusl á leið í bílana okkar.“ segir Þórir.

„Það er einhver einstaklingur sem kemur þarna og þrífur annað slagið með ryksugu. En það þyrfti að vera betra og það er ekkert eftirlit með þessu.“

Hefurðu vakið athygli á þessu?

„Já, og svo þekki ég mikið af fólki þarna upp frá af því ég er heimamður. Ég hef gert athugasemdir við þetta af því við erum að þjónusta fólk þarna og leigjum svæðið, Kynnisferðir og Gray Line. Þetta er vinnusvæðið okkar.“

„Svo er búið að fjarlægja rusalagáma og fólk er að henda rusli þarna fyrir utan. Ég gerði athugasemd við hjólakassa þarna um daginn, hann var skilinn eftir og var þarna í einhverja daga ásamt fullt af rusli.“

Hefurðu hringt eða talað við fólk í afgreiðslunni?

„Ég er búinn að reyna það,“ segir hann og bætir við „Þetta er hlutur sem þarf að laga og það þarf að eyða pening í að hafa þetta snyrtilegt.“

Aðspurður hvort eitthvað hafi verið gert til að bæta umhverfið segir hann umsjónaraðila hafa bætt einum rusladalli við þann eina sem var fyrir. Hins vegar þyrfti að tæma tunnurnar oftar.

Tvær myndir sem Þórir tók af umhirðunni eins og hún hefur verið í gegnum tíðina.Aðsent

Fólk hendi rusli út í móa

Þórir sendi Vísi myndir sem hann hefur tekið af svæðinu. Hann vildi þó árétta að það væri í gegnum tíðina. Umhirða við ruslatunnur fyrir veitingastaðina fyrir aftan völlinn hefði batnað til muna. Hins vegar þyrfti að bæta aðgengi að ruslatunnum fyrir aðkomufólk til muna.

„Þetta spannar tímabil og ég er alltaf að gera athugasemdir við þetta,“ segir Þórir.

„Það eru flestallir ruslagámar farnir af bílastæðinum, það er búið að fara í átak að taka þá alla í burtu,“ segir Þórir. „Þannig það er hægt að henda í ruslatunnur inni eða þá fólk hendir þessu bara eitthvert úti.

Umhirðan við ruslatunnurrnar bakvið flugstöðina voru ansi slæmar en segir Þórir að það hafi batnað til muna.Aðsent

Fyrir aftan stöðina eru síðan ruslatunnuröð fyrir mötuneytið og barinar Þórir náði myndum af afar sóðalegri umgengni þar bak við en segir að það sé sem betur fer búið að bæta úr því.

„Það er búið að gera átak þar. Það er orðið allt öðruvísi svæði, það er bara gámur fyrir pappakassa. Það hefur tekist að laga það,“ segir Þórir.

Þá sendi Þórir myndir af pappakössum, þar á meðal pappakassa undan hjóli sem kona skildi eftir. Þórir segir það vera mjög algengt að fólk hendi rusli út í móa af því það nær ekki að losa sig við rusl á vellinum.

„Þetta kemur úr skottunum á bílum. Fólk sem sækir ættingja uppgötvar að það vantar töskupláss í skottinu á bílnum. Það getur hvergi losað sig við þetta og þá eru þessu hent bara einhvers staðar til að búa til pláss fyrir töskurnar,“ segir Þórir sem segist sjá slíkt mjög reglulega.

Pappakassi undan hjóli sem Þórir sá konu á Teslu skilja eftir og pappakassi fullur af rusli.Facebook

Þrif miðist við fjölda farþega

Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, kannaðist ekki við að kvartanir hefðu borist í sumar vegna slæmrar umhirðu. Ruslahirða á vellinum miðaðist við fjölda farþega hverju sinni en allar ábendingar væru teknar alvarlega.

„Það eru verktakar sem sjá um þrif í og við flugstöðina. Við á Keflavíkurflugvelli tilgreinum hins vegar hver tíðni þrifa skuli vera og er sú tíðni miðuð við þann fjölda farþega sem fer um völlinn hverju sinni,“ sagði Guðjón aðspurður út í þrif á vellinum.

Guðjón Helgason upplýsingafulltrui Ísavia segir undanþágur hafa verið fengar til að viðhalda öryggi.Vísir/Vilhelm

Það væru því ekki minni þrif um helgar heldur miðast það eingöngu við magn farþegaumferðar.

„Við tökum allar svona ábendingar alvarlega. Við munum nú athuga hvort þar sé þörf á endurskoðun á einhverjum tímum dags og ræða það við okkar verktaka.“

Þið hafið ekki fengið neinar svona ábendingar um umhirðuna undanfarið?

„Ég hef ekki heyrt af því að við hefðum fengið beinar kvartanir um þetta. En allar kvartanir, hvort sem þær koma í gegnum samfélagsmiðla eða í tölvupósti eða hvernig sem þær berast okkur, eru teknar alvarlega. Ef eitthvað berst til okkar er það að sjálfsögðu skoðað.“

Aðspurður hvort hann kannaðist við það að ruslagámum hefði fækkað sagðist Guðjón ekki kannast við það.

„Ég veit ekki til þess að það hafi verið gerðar neinar breytingar á gámum og ruslatunnum. Ég get ekki fullyrt það en ég hef ekki heyrt af neinu slíku. Við viljum að það sé greitt aðgengi að rusli fyrir farþega og þá sem fara þarna um,“ sagði Guðjón.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×