Innlent

Segir þyrlur nánast ofan í kaffi­bollum íbúa

Árni Sæberg og Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifa
Sirrý Arnardóttir er venjulega ánægð með að hafa flugvöll nálægt heimili sínu. Það hefur breyst.
Sirrý Arnardóttir er venjulega ánægð með að hafa flugvöll nálægt heimili sínu. Það hefur breyst. Stöð 2

Íbúi í Skerjafirði segir að gríðarleg umferð þyrlna, sem nýttar eru til að flytja ferðamenn að eldgosinu við Litla-Hrút, sé hreinlega skerðing á lífsgæðum.

Mikil umferð þyrlna hefur kynnt undir miklar umræður um hávaðamengun í þéttbýli. Íbúar Skerjafjarðar Kársness í Kópavogi finna hvað allra mest fyrir þyti spaðanna.

Sirrý Arnardóttir fjölmiðlakona er ein íbúa Skerjafjarðar sem hafa fengið sig fullsadda af látunum. Hún ræddi málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.

„Sérstaklega á góðviðrisdögum, þegar maður er úti í garði að njóta veðurblíðunnar þá er þetta finnst manni á tveggja mínútna fresti og þetta er svona næstum því yfir hausnum á manni og mikill hávaði,“ segir hún.

Hávaðinn í þyrlunum bætist við hávaða frá einkaþotum, farþegaflugvélum og kennsluflugvélum, sem alla jafna taka á loft frá og lenda á Reykjavíkurflugvelli.

„Það er bara mál manna að við erum eiginlega að fá nóg og þetta er skerðing á lífsgæðum. Maður er allt í einu að átta sig á því að hvaða kyrrð er mikilvæg og hvað hávaðamengun er lýjandi.“

Sátt með flugvöllinn en vill útsýnisþyrlurnar burt

Sirrý segist gera sér grein fyrir því að hún búi við flugvöll og að hún sé sátt með veru hans í Vatnsmýrinni. Hverfið sé yndislegt þrátt fyrir hana og hún styðji hana áfram.

„En þá erum við að tala um venjulegt farþegaflug, fyrir bara venjulegar flugvélar sem koma ekki á tveggja mínútna fresti og þær eru ekki alveg ofan í kaffibollanum manns, þegar maður situr úti í garði að sóla sig.

Þá segir Sirrý að mikilvægt sé að ræða málið komi til þess að gosið vari mikið lengur. 

„Hverjir hafa rétt? Eru það bara ferðamenn eða eru það líka við sem erum með lögheimili í borginni? Þetta eru tugir þúsunda manna og á Kársnesinu í Kópavoginum. Við búum við hávaða viðstöðulaust, við þurfum að ræða þetta, við þurfum bara einhvern undirskriftalista. Við þurfum að láta í okkur heyra og helst að færa þetta.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×