„Þessi niðurstaða styrkir það sem við trúum á og sýnir að við höfum túlkað löggjöfina rétt frá upphafi,“ segir Sæunn Ósk Unnsteindóttir, framkvæmdastjóri Hopp Leigubíla, í samtali við Vísi. Hún segir ljóst að nýrri löggjöf hafi verið ætlað að auka á nýsköpun og þróun á leigubílamarkaði hérlendis.
Haraldur Axel Gunnarsson, framkvæmdastjóri Hreyfils, segir í skriflegu svari til Vísis að hann muni ekki tjá sig um málið að svo stöddu. Hann hyggst fara yfir úrskurð Samkeppniseftirlitsins með stjórn Hreyfils og lögmönnum fyrirtækisins.

Segist engan veginn anna eftirspurn
Sæunn segir að Hopp appið, þar sem hægt hefur verið að panta sér leigubíla í rúman mánuð, sé farveita en ekki leigubílastöð. Hún megi vera starfandi og ekkert í nýjum lögum sem bindi leigubílstjóra við eitt fyrirtæki.
„Þau voru sett fram til að auka tekjur og auka möguleika leigubílstjóra. Við erum ekki að gera neitt annað en það. Við erum að bjóða upp á tækni sem á að gera þessa þjónustu enn betri. Því að þetta er almenningsþjónusta sem skiptir okkur öll máli og er gríðarlega mikilvæg.“
Sæunn segir ljóst að Hopp Leigubílar hafi orðið fyrir tekjumissi vegna ákvörðunar Hreyfils. „Ekki bara það heldur hafa bílstjórarnir sjálfir orðið fyrir tekjumissi. Við erum engan veginn að anna eftirspurn, okkur vantar fleiri bílstjóra,“ segir Sæunn.
„Það er bara gríðarlegt ójafnvægi á þessum markaði og við því miður náum ekki að koma markaðnum á jafnvægi á einni nóttu. En það tekur okkur enn lengri tíma þegar markaðurinn sjálfur hamlar þróun og nýsköpun. Það er ekkert annað en það.“