Viðskipti innlent

Ás­mundur Tryggva­son hættur hjá Ís­lands­banka

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Ásmundur Tryggvason keypti rúmlega 96 þúsund hluti fyrir rúmar ellefu milljónir í útboðinu og hafði einnig samband við regluvörð til að liðka fyrir kaupum starfsmanna. Hann hefur nú stigið til hliðar.
Ásmundur Tryggvason keypti rúmlega 96 þúsund hluti fyrir rúmar ellefu milljónir í útboðinu og hafði einnig samband við regluvörð til að liðka fyrir kaupum starfsmanna. Hann hefur nú stigið til hliðar. Aðsent

Ásmund­ur Tryggva­son, fram­kvæmda­stjóri á sviði fyr­ir­tækja og fjár­festa hjá Íslands­banka, hef­ur ákveðið að stíga til hliðar. Krist­ín Hrönn Guðmunds­dótt­ir hef­ur verið ráðin í hans stað.

Þetta kemur fram í tilkynningu Íslandsbanka frá því í kvöld. Ásmundur Tryggvason hefur gegnt stöðunni frá árinu 2019.

Það hefur verið mikil ólga í kringum Íslandsbanka undanfarið í kjölfar skýrslu Fjármálaeftirlitsins um bankasöluna sem sýndi að bankinn hefði framið alvarleg brot við söluna.

Í skýrslunni kom fram að Ásmundur hefði sett sig í samband við regluvörð Íslandsbanka til að liðka fyrir kaupum starfsmanna bankans í útboðinu en sjálfur keypti hann rúmlega 96 þúsund hluti fyrir rúmar ellefu milljónir. 

Þess ber einnig að geta að hann er eiginmaður Önnu Lísu Björnsdóttur, framkvæmdastjóra þingflokks Vinstri grænna.

Fylgir í fótspor Birnu

Birna Einarsdóttir, bankastjóri, sagði upp störfum í vikunni og var Jón Guðni Ómarsson ráðinn í hennar stað. Nú er Ásmundur líka hættur og hefur Kristín Hrönn Guðmundsdóttir verið ráðin í staðinn.

Í tilkynningu Íslandsbanka segir að Kristín Hrönn sé með B.Sc. gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands, stjórnendagráðu frá IESE Business School í Barcelona og hafi lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.

Hún hafi yfir tuttugu ára reynslu sem stjórnandi á fjármálamörkuðum. Hún stýrði teymi verslunar og þjónustu meðal stærri fyrirtækja á árunum 2013-2019 og hefur síðan þá verið forstöðumaður Fjármála, reksturs og stefnumótunar á sviðinu auk þess að sitja í lánanefndum, efnahagsnefnd og fjárfestingarráði bankans.

„Um leið og við þökkum Ásmundi fyrir hans störf bjóðum við Kristínu Hrönn velkomna í framkvæmdastjórn. Hún hefur víðtæka reynslu sem á eftir að nýtast vel í störfum hennar fyrir bankann,“ sagði Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka.


Tengdar fréttir

Segist maðurinn til að leiða bankann á­fram og tekur varnaðar­orðum VR al­var­lega

Formaður VR segir félagið hætta milljarða viðskiptum sínum við Íslandsbanka ef bankinn telji það eitt duga að bankastjórinn hætti störfum vegna fjölmargra brota við útboð bankans á hlut ríkisins í fyrra. Nýr bankastjóri leggur áherslu á að bankinn bregðist við umbótakröfum Fjármálaeftirlitsins og segir sjálfsagt að biðjast afsökunar á því sem fór úrskeiðis. 

Birna lætur af störfum hjá Ís­lands­banka

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, hefur ákveðið að stíga til hliðar „með hagsmuni bankans að leiðarljósi“. Segist hún gera það til að „ró geti myndast vegna sáttar Íslandsbanka við fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands“.

Kata­strófísk krísu­stjórnun Ís­lands­banka

Þeir sem sinna almannatengslum klóra sér margir hverjir í kolli vegna viðbragða Birnu Einarsdóttur fyrrverandi bankastjóra Íslandsbanka og samskiptadeildar bankans í aðdraganda þess að hún þurfti svo nauðbeygð að segja upp störfum.

Rík­harður keypti í Ís­lands­banka fyrir 27 milljónir

Ríkharður Daðason, fagfjárfestir og fyrrverandi atvinnumaður í fótbolta, keypti tæplega 231 þúsund hluti í Íslandsbanka í lokuðu útboði Bankasýslu ríkisins á þriðjudag fyrir tæpar 27 milljónir króna.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×