Spilað á slóðum Dags Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. júlí 2023 11:06 Úr leik Portúgals og Króatíu á HM U-21 árs. Sigurvegarinn mætir strákunum hans Arnórs Atlasonar í leiknum um 5. sætið á morgun. vísir/iþs Úrslitahelgi heimsmeistaramóts U-21 árs handbolta karla fer fram í stærstu og einni flottustu íþróttahöll Berlínar.
Höllin er nefnd í höfuðið á Max Schmeling, frægasta hnefaleikakappa Þjóðverja. Hún er þriðja stærsta íþróttahöll Berlín á eftir Mercedes Benz höllinni og Velodrom. Max Schmeling höllin var opnuð 1996 og var heimavöllur körfuboltaliðsins Alba Berlin í tólf ár. Martin Hermannsson lék við góðan orðstír með Alba Berlin fyrir nokkrum árum. Max Schmeling höllin er vinsæl tónleikahöll og hefur meðal annars hýst tónleika með bandarísku metalsveitinni Manowar.vísir/iþs Frá 2005 hefur Max Schmeling höllin verið heimavöllur Füchse Berlin, eins sterkasta handboltaliðs Þýskalands. Dagur Sigurðsson þjálfaði liðið á árunum 2009-15 og gerði það að þýskum bikarmeisturum 2014 auk þess sem það vann Evrópudeildina 2015. Max Schmeling höllin getur mest tekið tólf þúsund áhorfendur á handboltaleikjum. Allt að fjögur þúsund manns gætu verið á undanúrslitaleikjunum á HM U-21 árs í dag. Nokkur fjöldi Íslendinga er í Berlín og hefur verið á leikjum liðsins á mótinu til þessa. Talið er að tæplega hundrað Íslendingar gætu verið á leikjunum um helgina. Leikur Íslands og Ungverjalands hefst klukkan 13:30 að íslenskum tíma og verður í beinni textalýsingu á Vísi.
Handbolti Landslið karla í handbolta Mest lesið Fær 2,6 milljónir á dag fyrir að mæta ekki í vinnuna Sport Breyta landsliðsbúningnum sínum eftir flótta forsetans Fótbolti Guðjón Valur búinn að fá nóg af svikahröppum Handbolti Gekk á hnjánum yfir allan völlinn Fótbolti Andlitið dettur af sumum: Mourinho hrósaði dómaranum eftir tapleik Fótbolti Sjáðu frábær tilþrif Cecilíu í sögulegum leik á San Siro Fótbolti „Var svo hræddur um hvað yrði um hann“ Enski boltinn Dagskráin: Liverpool í Katalóníu, Meistaradeildin, kvennakarfan og NBA Sport Bowen fagnaði sigurmarkinu með treyju Michail Antonio Enski boltinn Dönsku stelpurnar tryggðu sér úrslitaleik á móti Hollandi Handbolti Fleiri fréttir Stiven hafði betur gegn Orra í kvöld Dönsku stelpurnar tryggðu sér úrslitaleik á móti Hollandi FH og Valur fóru bæði í átta liða úrslitin Guðjón Valur búinn að fá nóg af svikahröppum Þórir og norsku stelpurnar komnar í undanúrslitin Hollensku stelpurnar skrefi nær undanúrslitunum Niðurbrotin en fær skyndilega að spila eftir skot í höfuð Markvörður Dags enn að jafna sig eftir árás liðsfélaga Gæti mætt Íslandi á HM: „Algjört æði“ Guðjón stýrði til sigurs en svekkjandi tap hjá lærisveinum Rúnars Elvar rekinn af velli er Melsungen endurheimti efsta sætið Guðmundur skákaði Arnóri Öruggt hjá Haukum og Stjörnunni Slæmt tap Svía Skildi ekki eftir eitt sekúndubrot á klukkunni Haukar mæta liði sem er á ókunnum slóðum Nýtt lið og ný íbúð með litla bróður: „Var svolítið þröngt með mig á sófanum“ Orri pottþéttur gegn Berlínarrefunum „Við vorum sjálfum okkur verstir“ Stelpurnar hans Þóris unnu Dani Öruggt hjá FH og Fram en endurkoma hjá ÍR á Nesinu Uppgjörið: Afturelding - Valur 29-25 | Mosfellingar unnu stórleikinn Arnar Birkir áfram heitur í öðrum sigri Amo í röð Haukur kom að níu mörkum gegn PSG Heimsmeistararnir tóku fram úr undir lokin Þýskaland áfram á flugi eftir sigurinn gegn Íslandi Stjarnan kærir eftir að dómarar kíktu í símann Vill gera róttækar breytingar á umhverfi kvennalandsliðsins Ófarir Magdeburg í Meistaradeildinni halda áfram Óðni héldu engin bönd í toppslagnum Sjá meira