Lífið á Vísi setti saman lista af nokkrum vel völdum og þekktum íslenskum mönnum sem eiga það sameiginlegt að bera titilinn pabbi.
Óhætt er að segja að mikið barnalán hafi svifið yfir íslensku rappsenunni undanfarið. Tónlistarmaðurinn Birnir von á sínu fyrsta barni síðar á árinu. Þeir Herra Hnetusmjör og Emmsjé Gauti hafa jafnframt verið duglegir að bæta í barnaskarann.
Tónlistarmaðurinn Aron Can Gultekin eignaðist frumburðinn Theo Can 3. apríl síðastliðinn. Barnsmóðir og kærasta Arons heitir Erna María Björnsdóttir og starfar sem flugfreyja.

Friðrik Róbertsson, jafnan þekktur sem Flóni, eignaðist einnig frumburð sinn í vetur. Drengurinn ber nafnið Benjamín. Kærasta og barnsmóðir Flóna er Hrafnkatla Unnarsdóttir en hún nemur stund við fatahönnun í Listaháskóla Íslands.

Jón Ragnar Jónsson, tónlistarmaður á fjögur börn með eiginkonu sinni Hafdísi Jónsdóttur tannlækni. Hjónin eiga tvo drengi og tvær stúlkur sem Jón deilir reglulega myndum af á samfélagsmiðlum, ýmist á ferðalagi eða frá daglegu lífi þeirra. Börnin bera nöfnin Jón Tryggvi, Mjöll, Sigríður Sól og Friðrik Nói og eru öll skírð í höfuðið á skyldmennum sínum.

Bróðir Jóns, Friðrik Dór Jónsson tónlistarmaður, á þrjár stúlkur með eiginkonu sinni Lísu Hafliðadóttur, lýðheilsufræðingi. Dætur þeirra heita Ásthildur, Úlfhildur og Hrafnhildur. Friðrik gaf út plötuna Dætur þeim til heiðurs.

Snorri Másson fjölmiðlamaður eignaðist sitt fyrsta barn í byrjun júní. Drengurinn heitir Már í höfuðið á föðurafa sínum. Sambýliskona Snorra, Nadine Guðrún Yaghi, samskiptafulltrúi Play, á son úr fyrra sambandi.

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands á fimm börn, þrjú af þeim með núverandi eiginkonu sinni, Elizu Reid forsetafrú. Þau heita Duncan Tindur, Donald Gunnar, Sæþór Peter, Edda Margrét og Rut. Guðni virðist afar iðinn fjölskyldufaðir sem tekur þátt alls kyns gleði með börnum sínum, líkt og hjólaferðum um Álftanes. Þá lætur hann sig ekki vanta á yngri flokka mótin í sportinu og studdi Álftanes á N1-mótinu í sumar.

Björn Thors leikari og leikstjóri á fjögur börn með eiginkonu sinni, Unni Ösp Stefánsdóttur, leikkonu og leikstjóra. Frumburðurinn, Stefán, skírður í höfuðið á afa sínum, fyrrum þjóðleikhússtjóra, Stefáni Baldurssyni, þá næst einkadóttirin Bryndís og svo tvíburarnir Dagur og Björn sem bættust í hópinn árið 2017.

Athafnamaðurinn Skúli Mogensen á fimm börn, þar af tvo drengi með sambýliskonu sinni, Grímu Björgu Thorarensen innanhúshönnuði og fyrrum flugfreyju. Yngstu drengirnir tveir heita Jaki og Stormur fæddir 2019 og 2021. Eldri börn Skúla heita Ásgeir, Anna Sif og Thelma.

Fjölmiðlamaðurinn Auðunn Blöndal eða Auddi Blö eins og hann er alltaf kallaður, eignaðist tvo drengi með stuttu millibili með sambýliskonu sinni Rakel Þormarsdóttur. Auddi er duglegur að deila daglegu lífi drengjanna sinna, þeirra Theodórs Sverris og Matteó Orra á samfélagsmiðlum.

Tónlistarmaðurinn Sverrir Bergmann Magnússon á tvær dætur með unnustu sinni, Kristínu Evu Geirsdóttur lögfræðingi. Dæturnar Ásta Bertha og Sunna Stella fæddust með árs millibili, 2020 og 2021.

Magnús Geir Þórðason, þjóðleikhússtjóri og Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, forstöðumaður samkeppnishæfnissviðs Samtaka Atvinnulífssins og stjórnarformaður Hörpu eiga samtals fimm börn. Fyrir átti Ingibjörg þrjú börn en saman eignuðust hjónin drengina Árna Gunnar og Dag Ara með árs millibili. Ætla má að líf og fjör sé á þeim bænum.

Kírópraktorinn Guðmundur Birkir Pálmason, þekktur sem Gummi kíró á þrjú börn. Dótturina Lilju Marín og drengina Máni Hrafn og Pálma. Gummi virðist náinn börnum sínum og fer iðulega í ferðir með þau út fyrir landssteinana. Um þessar mundir er hann staddur á Tenerife í fríi með unnustu sinni Línu Birgittu Sigurðardóttur athafnakonu og drengjunum tveimur.

Gunnar Steinn Jónsson handboltakappi og tískudrottningin Elísabet Gunnarsdóttir eiga saman þrjú börn. Frumburðurinn Alba Mist er fjórtán ára og fermdist nú í vor, miðjubarnið Gunnar Manuel sjö ára sigrar leikinn reglulega á samfélagsmiðlum með sjarma sínum. Nýjasta viðbótin, Anna Magdalena, tæplega tíu mánaða sýnir áhugasömum fylgjendum Elísabetar heiminn á ferðalögum sínum.

Hörður Björgvin Magnússon knattspyrnumaður á tvær dætur, þær Matteu Móu, þriggja ára og Mörlu Ósk, eins árs. Eiginkona Harðar er athafnakonan Móeiður Lárusdóttir.
Hörður og fjölskylda er búsett í Grikklandi þar sem hann spilar fyrir liðið Panathinaikos í efstu deild.

Listamaðurinn Elli Egilsson tilkynnti tilvist dóttur sinnar heldur óvænt á samfélagsmiðlum fyrr á þessu ári en barnið er á þriðja aldursári. Hann er giftur leikkonunni Maríu Birtu Bjarnardóttur. Elli virðist plumma sig vel í föðurhlutverkinu og er þegar byrjaður að kenna dótturinni að mála miðað við skemmtileg myndskeið sem hann hefur birt í hringrásinni (e.story) á Instagram.
