Skoðun

Geðsjúklingur deyr

Magnús Sigurðsson skrifar

Fljótlega eftir stofnun geðspítalans á Kleppi árið 1907 hafði starfsemin þar sprengt húsnæðið utan af sér. Því var opnað eins konar útibú við spítalann, hinn svokallaði Litli-Kleppur, sem hýsti um 10 sjúklinga í senn í hrörlegu bráðabirgðahúsnæði við Laufásveg. Forstöðumaður Litla-Klepps var um skeið Guðmundur Sigurjónsson, landsfrægur glímukappi og áberandi baráttumaður í hreyfingu reykvískra góðtemplara. Snemma fóru þó að heyrast sögur um að glímukappinn fyrrverandi færi heldur hörðum höndum um skjólstæðinga sína. Og þar kom að ávirðingarnar sem hafði verið hvíslað um rötuðu á síður blaðanna. Árið 1923 lýsti maður að nafni Ingvar Sigurðsson aðförunum í grein sinni „Geðveikrahælið á „Litla Kleppi““. Þar segir meðal annars:

Svo, ef sjúklingur skvaldrar af órósemi hungurs og geðbilunar, er hann tekinn, bundnar hendur fyrir bak aftur og vægðarlaust stungið upp í munninn kefli, sem binda skal einnig aftur fyrir hnakkann. […] Svo, ef einhver af geðbilun sinni sýnir mótþróa, þá er lækningin sú að reka löðrung sinn á hvorn vanga æ ofan í æ […] og er ei nokkur neisti af mannúð í að láta svona ólærðan flumbrara hafa svona starf til meðferðar, sem er forblindaður um að kæra sig um að vita, hve vont hann er að vinna.

Grein Ingvars svaraði Guðmundur með því að hóta honum málsókn vegna meiðyrða, en virðist ekki hafa gert alvöru úr þeim hótunum. Hins vegar var Guðmundur sjálfur ákærður snemma árs 1924 fyrir ómannúðlega meðferð á vistmönnum Litla-Klepps. Við réttarhöldin viðurkenndi hann að hafa slegið sjúklingana utan undir, en neitaði að hafa beitt ónauðsynlegu ofbeldi til að hafa tilhlýðilega stjórn á mannskapnum. Í sem stystu máli tók rétturinn undir þau sjónarmið, og var Guðmundur Sigurjónsson sýknaður af öllum ásökunum um misbeitingu valds með eftirfarandi rökum:

Það er öllum vitanlegt sem nokkuð þekkja til brjálaðra manna að oft verður að beita hörku við þá og jafnvel láta þá kenna aflsmunar, er því erfitt að segja hvenær of langt sé farið í þeim efnum og hvenær hefði mátt komast af með minni hörku.

Nákvæmlega hversu langt má fara í þeim efnum, hversu mikilli hörku má beita við meðhöndlun „brjálaðra manna“ og hversu mikils afslmunar það má láta hina geðsjúku kenna án þess að þeir sem ofbeldinu beita séu dregnir til ábyrgðar, það vitum við aftur á móti núna, eftir að Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði hjúkrunarfræðing sem með hörku sinni og misbeitingu valds olli dauða konu á geðdeild Landspítalans 16. ágúst árið 2021. Ofbeldi gegn geðsjúkum, hvort heldur sem er á geðdeild Landspítalans árið 2023 eða á Litla-Kleppi árið 1923, er eftir sem áður refsilaus verknaður. Jafnvel þegar ofbeldið veldur dauða.

Höfundur er rithöfundur.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×