Handbolti

Gísli gat ekki lyft höndinni: „Með svo mikið af verkjalyfjum og dóti í mér“

Sindri Sverrisson skrifar
Gísli Þorgeir Kristjánsson með verðlaunagripinn eftir að hafa orðið Evrópumeistari í gær, degi eftir að hafa farið úr hægri axlarlið.
Gísli Þorgeir Kristjánsson með verðlaunagripinn eftir að hafa orðið Evrópumeistari í gær, degi eftir að hafa farið úr hægri axlarlið. Getty/Marius Becker

Gísli Þorgeir Kristjánsson náði á einhvern ótrúlegan hátt að spila úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í gær, degi eftir að hafa farið úr axlarlið, og skora sex mörk í sigri Magdeburg á Kielce í Köln í gær. Hann segir verkjalyf hafa hjálpað sér en gat þó aldrei lyft skothendinni með eðlilegum hætti.

Gísli hefur hlotið verðskuldað lof fyrir frammistöðu sína og verið líkt við Tortímandann, vélmenni og uppvakning, þar sem hann lét meiðslin ekki stöðva sig í gær.

„Mig langaði auðvitað svo mikið að spila hérna, í þessu andrúmslofti og með þessa stuðningsmenn. Ég fann það [í fyrradag] hvað við vildum mikið vinna þessa keppni en ég var ekki viss [í gærmorgun] hvort að ég myndi geta spilað. Öxlin mín... ég er með svo mikið af verkjalyfjum og dóti í mér, sem draga úr sársaukanum, en það er allt þess virði,“ sagði Gísli á Twitch-rás EHF eftir leikinn.

Spyrillinn benti á að Gísli hefði aldrei getað beitt skothendinni með eðlilegum hætti, en samt náð að skora sex mörk.

„Ég gat ekki lyft henni hærra. Jafnvel með þessi verkjalyf þá gat ég ekki lyft öxlinni ofar en 90 gráður en þetta er allt þess virði og mér gæti ekki verið meira sama um hvernig ég skoraði mörkin. Við unnum og þetta er eitt besta augnablik lífs míns. Ég man ekki eftir að hafa fundið svona mikla gleði,“ sagði Gísli.

Gísli var eftir leikinn valinn verðmætasti leikmaður úrslitahelgarinnar, í bestu félagsliðadeild í heimi, rétt eftir að hafa verið valinn besti leikmaður tímabilsins í Þýskalandi.

Gísli tók undir það að hann tilheyrði liði sem hreinlega neitaði að gefast upp, sama hvaða staða kæmi upp.

„Já, svo sannarlega. Þegar ég fór úr axlarlið í gær þá þjöppuðu strákarnir sér allir enn meira saman. Það eru allir tilbúnir að taka af skarið. Í gær var Marko Bezjak með kennslustund í því að vera leikstjórnandi og það var svo gaman fyrir mig að sjá þennan frábæra náunga, og gaman fyrir mig að við næðum að kveðja hann svona. Hugarfarið í þessu liði er svo frábært að ég get ekki lýst því,“ sagði Gísli.


Tengdar fréttir

Gísli Þorgeir beit fast á jaxlinn og Magdeburg vann Meistaradeildina

Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði sex mörk úr átta skotum þegar lið hans, Magdeburg, vann Meistaradeild Evrópu í handbolta með 30-28 sigri sínum gegn pólska liðinu Kielce í úrslitaleik keppninnar í Lanxess Arena í Köln í dag. Gísli Þorgeir spilaði lungann úr leiknum þrátt fyrir að hafa farið úr axlarlið í undanúrslitaleik Magdeburgar og Barcelona í gær. 

Það fyrsta sem Gísli Þorgeir sagði: „Vinnið þetta fyrir mig“

Gísli Þorgeir Kristjánsson bað liðsfélaga sína hjá Magdeburg vinsamlega um að vinna leik liðsins á móti Barcelona í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í handbolta karla eftir að ljóst varð að hann gæti ekki haldið áfram í þessum mikilvæga leik vegna meiðsla á öxl. 

Gísli Þorgeir fór úr axlarlið

Gísli Þorgeir Kristjánsson, landsliðsmaður í handbolta, fór úr axlarlið þegar lið hans Magdeburg tryggði sér sæti í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í handbolta með sigri gegn Barcelona fyrr í Lanxess Arena í Köln í dag. 

Gísli Þorgeir valinn besti leikmaður tímabilsins

Gísli Þorgeir Kristjánsson hefur verið valinn besti leikmaður þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta. Hann spilar með Magdeburg sem endaði í öðru sæti, einungis tveimur stigum á eftir Kiel.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×