Viðskipti innlent

Reynir Ingi tekur við af Sindra hjá Expectus

Atli Ísleifsson skrifar
Helga Dögg Björgvinsdóttir rekstrastjóri, Reynir Ingi Árnason framkvæmdastjóri, Kristinn Már Magnússon tæknistjóri og stjórnarmaður, Ragnar Þórir Guðgeirsson stjórnarformaður og Kristín Ingólfsdóttir stjórnarmaður.
Helga Dögg Björgvinsdóttir rekstrastjóri, Reynir Ingi Árnason framkvæmdastjóri, Kristinn Már Magnússon tæknistjóri og stjórnarmaður, Ragnar Þórir Guðgeirsson stjórnarformaður og Kristín Ingólfsdóttir stjórnarmaður. Aðsend

Reynir Ingi Árnason hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra hjá ráðgjafa- og hugbúnaðarfyrirtækinu Expectus. Hann tekur við af Sindra Sigurjónssyni.

Í tilkynningu kemur fram að Reynir Ingi sé með meistarapróf í hagfræði og fjármálum frá Copenhagen Business School og hafi starfað hjá Expectus undanfarin sjö ár. Þar áður hafi hann starfað um skeið hjá Deloitte. 

Hann kemur nú í hóp stjórnenda félagsins með Helgu Dögg Björgvinsdóttur rekstrarstjóra og Kristni Má Magnússyni tæknistjóra. 

Haft er eftir Ragnari Þóri Guðgeirssyni, stjórnarformanni Expectus, að það sé ánægjulegt að Reynir taki við sem framkvæmdastjóri og að hann sé verðugur arftaki Sindra Sigurjónssonar sem nú hafi horfið til annarra starfa. 

„Fyrirtækið hefur ennfremur staðið í ákveðnu breytingaferli síðastliðin tvö ár sem felst í endanlegri uppskiptingu Expectus og systurfélagsins ExMon sem nú lýtur sjálfstæðu eignarhaldi og stjórn. Í framhaldi af því hafa jafnframt orðið þær breytingar á sjórn Expectus að Kristín Ingólfsdóttir, fyrrverandi rektor Háskóla Íslands, kemur ný inn í stjórnina,“ segir Ragnar Þórir. 

Expectus sérhæfir sig í rekstrarráðgjöf, stefnumótun og viðskiptagreind. Fyrirtækið var stofnað 2009 og í dag starfa þar um 25 manns sem öll eru sérfræðingar, hvert á sínu sviði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×