Gæti verið tekinn af úrslitaleiknum vegna tenginga við öfgamann Smári Jökull Jónsson skrifar 2. júní 2023 09:31 Szymon Marciniak er í vandræðum. Vísir/Getty Pólski dómarinn Szymon Marciniak er í vandræðum eftir að hafa haldið ræðu á viðburði á vegum hægri öfgamanns. UEFA skoðar hvort finna þurfi annan dómara á úrslitaleik Meistaradeildarinnar.
Szymon Marciniak er einn af virtustu dómurunum í knattspyrnuheiminum um þessar mundir en hann dæmdi meðal annars úrslitaleik Frakklands og Argentínu á heimsmeistaramótinu í Katar í desember. Búið var að gefa út að Marciniak yrði við stjórnvölinn í leik Manchester City og Inter í úrslitum Meistaradeildarinnar þann 10. júní en nú gæti UEFA þurft að finna nýjan dómara. Fregnir hafa nefnilega borist af því að Marciniak hafi verið einn af ræðumönnum á viðburði sem skipulagður var af hægri öfgamanninum Slawomir Mentzen. Mentzen þessi er meðal annars þekktur fyrir að hafa komið af stað pólítíska slagorðinu „Við erum á móti gyðingum, samkynhneigðum, fóstureyðingu, sköttum og Evrópusambandinu.“ Samkvæmt ítalska blaðinu La Repubblica er Uefa að skoða málið og tekur það mjög alvarlega. Svo gæti farið að Marciniak yrði einfaldlega tekinn af úrslitaleiknum og annar dómari fundinn í hans stað. „UEFA og allt knattspyrnusamfélagið fordæmir þau „gildi“ sem eru í hávegum höfð hjá umræddum hópi og tekur þessar ásakanir mjög alvarlega,“ er haft eftir forsvarsmanni UEFA í The Guardian.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Sjáðu mörkin þegar Real tryggði sér Evrópubikarinn Fótbolti „Við erum allavega ekki að fara að sofa“ Fótbolti Markavélin spennt fyrir skiptum til Arsenal Enski boltinn Slakur árangur og samskiptaleysi ástæðan fyrir brottvikningu Brynjars Björns Fótbolti Real Madrid Evrópumeistari í fimmtánda sinn Fótbolti „Erum á ákveðinni vegferð” Fótbolti Tekur við Napoli og verður sá launahæsti í sögunni Fótbolti „Menn þurfa að gera sér grein fyrir að við erum í botnbaráttu, engu öðru“ Fótbolti Hnéskel Kristófers fór í tvennt Körfubolti „Besta kvöld lífs míns“ Fótbolti Fleiri fréttir „Við erum allavega ekki að fara að sofa“ Slakur árangur og samskiptaleysi ástæðan fyrir brottvikningu Brynjars Björns Sjáðu mörkin þegar Real tryggði sér Evrópubikarinn „Besta kvöld lífs míns“ Real Madrid Evrópumeistari í fimmtánda sinn Markavélin spennt fyrir skiptum til Arsenal „Menn þurfa að gera sér grein fyrir að við erum í botnbaráttu, engu öðru“ Tekur við Napoli og verður sá launahæsti í sögunni „Erum á ákveðinni vegferð” Jafntefli í báðum leikjunum í Lengjudeildinni Uppgjörið: KA - ÍA 2-3 | Skagamenn sóttu sigur norður Ronaldinho mætti með stæl á úrslitaleikinn Allt í skrúfunni hjá liði Arnórs Ingva og Gísli lagði upp fyrir Halmstad Pablo fékk útkall frá landsliðsþjálfara El Salvador Kolbeinn fagnaði í Íslendingaslag í Gautaborg Afi skenkti leikmönnum Dortmund bjór KA-menn hafa geta treyst á stigin í Skagaleikjunum síðustu ár Harður stuðingsmaður Real Madrid: „Við elskum þessa keppni“ Fan Zone á hinum mikilvæga leik stelpnanna okkar á þriðjudaginn Ráku Brynjar Björn strax eftir leik Cristiano Ronaldo grét eftir tap í gær Ekkert verður af kaupunum á Everton Óli Jó skellihló eftir pillu Heimis til KSÍ: „Takk fyrir mig“ Sjáðu markaveisluna og magnaða endurkomu Framara á móti FH Freyr þakklátari fyrir ótrúlegustu hluti: „Búið að vera erfitt“ Courtois byrjar úrslitaleikinn „Veit ekki hvaðan þetta kom allt frá okkur“ „Eftir að við fengum á okkur fyrsta markið slökktum við á okkur“ Uppgjör: FH - Fram 3-3 | Ótrúleg endurkoma Fram í Krikanum Fyrstu sigrar Aftureldingar og Þróttar Sjá meira