Lífið samstarf

Ný drykkjarpróf geta komið upp um byrlun

Artasan
Algengusta form byrlunar er þegar lyf eru sett í áfenga drykki fólks án þeirra vitundar
Algengusta form byrlunar er þegar lyf eru sett í áfenga drykki fólks án þeirra vitundar

„Þeir sem byrla öðrum gera það til að stjórna þeim sem er byrlað og er það yfirleitt gert til að notfæra sér ástand viðkomandi.

Algengusta form byrlunar er þegar lyf eru sett í áfenga drykki fólks án þeirra vitundar. Stundum er áfengi líka neytt ofan í fólk eða ítrekað hellt í það. Þetta er oft í þeim tilgangi að sljóvga fólk eða gera það meðvitundarlaust.

 Fólk veit yfirleitt ekki sjálft að því hefur verið byrlað því einkennum svipar oft til of mikillar áfengisneyslu eða ofþreytu. 

Við ættum því alltaf að vera vakandi fyrir því ef einhver í kringum okkur er ekki í ástandi til að geta borið ábyrgð á sjálfum sér,” segir Særós Ester Leifsdóttir, viðskiptastjóri hjá Artasan en Artasan hefur sett í sölu nýja og áhugaverða vöru, CYD drykkjarprófin.

Einn dropi segir til um öryggi 

CYD drykkjarprófin eru hönnuð til þess að athuga hvort að byrlunarefni hafi verið sett út í drykki. Einn dropi af drykknum er settur á prófið og liturinn segir til um hvort að drykkurinn sé öruggur eða ekki. Prófið greinir efni á borð við GHB og ketamín.

Einkenni byrlunar geta verið mismunandi eftir því hvaða lyf er um að ræða en þau geta verið eftirfarandi:

  • Skyndilegt og mikið ölvunarástand
  • Svimi
  • Ógleði og uppköst
  • Óskýrt tal
  • Máttleysi í útlimum
  • Ringlun
  • Skert meðvitund
  • Minnisleysi

„Við erum nú þegar komin með CYD drykkjarprófin í sölu í apótek, bensínstöðvar og er á leiðinni inn á fleiri staði. Á döfinni er einnig að fá skemmtistaði í samstarf með okkur, þannig að prófin verði í boði þar ef fólk telur sig þurfa á þeim að halda en er ekki með þau á sér ,” segir Særós.

Athugið að ekki má setja prófið í drykkinn. Sumir drykkir geta ranglega veitt jákvæðar niðurstöður, t.d. drykkir sem eru rauðir að lit.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×